fbpx
Fimmtudagur 15.maí 2025
FókusKynning

Fagleg þjónusta fyrir gönguskíðafólk

Kynning

Craftsport flytur inn fyrsta flokks vörur

Jóhanna María Einarsdóttir
Laugardaginn 27. maí 2017 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Craftsport er ein flottasta útivistarbúðin á landinu, og þó víðar væri leitað. Eigandinn, Kristbjörn R. Sigurjónsson, er sjálfur mikið í útivist og flytur inn útivistarfatnað frá Craft, gönguskíðavörur frá Madshus og skíðaáburð frá Rode. Það eru þónokkrir smásöluaðilar sem selja Craft-vörur á Íslandi og er lista yfir þá að finna á vefsíðu Craftsport. „Við sérhæfum okkur í gönguskíðum, gönguskíðafatnaði og -búnaði, reiðhjólabúnaði og almennum útivistarbúnaði. Þeir sem koma hingað segja að hér sé flottasta hlaupabúðin á landinu, en Craft framleiðir frábæran fatnað fyrir hvers kyns útivist,“ segir Kristbjörn.

Besta búðin með hlaupavörur.
Besta búðin með hlaupavörur.

Fyrsta flokks vörur og þjónusta

Hjá Craftsport fást fyrsta flokks gönguskíði frá norska fyrirtækinu Madshus, sem er eitt stærsta fyrirtækið í gönguskíðabransanum. Um er að ræða hágæða gönguskíði sem henta jafnt í skemmtigöngur og í keppnir. „Ég stunda sjálfur mikið gönguskíði og hef verið í þessu í yfir tuttugu ár,“ segir Kristbjörn. Þegar Kristbjörn er ekki í búðinni eða á gönguskíðum, situr hann síður en svo auðum höndum. Hann stundar einnig mikið hlaup, göngur og hjólar mikið. Hann þekkir útivistarvörurnar vel af eigin reynslu og þykir mikilvægt að þeir sem koma í búðina í leit að búnaði, fái góða þjónustu sem hentar þeim persónulega. „Í Noregi og Svíþjóð er alla jafna hægt að treysta því að þegar þú ferð í búð sem selur skíðabúnað, veit starfsfólkið allt um vöruna og hefur sjálft reynslu. Það leiðir til þess að viðskiptavinurinn fær vöru sem hentar honum. Þannig er það líka í búðinni hjá mér,“ segir Kristbjörn. Hann segist ekki vera að þessu til þess að einfaldlega selja, heldur vilji hann að þeir sem leiti til hans haldi áfram að stunda íþróttina. Það er mikilvægt að viðskiptavinurinn fái góðar vörur sem endast vel og eru þægilegar. „Þú heldur ekki áfram í sportinu ef þú færð ekki góðan búnað, það er mikið atriði,“ segir Kristbjörn.

Fyrsta flokks gönguskíði frá Madshus.
Fyrsta flokks gönguskíði frá Madshus.

Frá Madshus fást svokölluð skinnskíði, en það eru gönguskíði með skinni undir miðjunni sem eykur festu og fatt og gerir það auðveldara að spyrna sér áfram. „Þessi eru mjög vinsæl í dag og henta öllum sem vilja stunda gönguskíði af krafti. Við flytjum líka inn gönguskíðaskó og stafi frá Madshus,“ segir Kristbjörn. Gönguskíðaskórnir eru yfirleitt hreyfanlegri og léttari en þessir hefðbundnu svigskíðaklossar. „Svo erum við með mjög góða skíðastafi frá Madshus. Markaður fyrir gönguskíði hefur stækkað stöðugt vegna aukins áhuga hér á Íslandi.“

Flottur fatnaður frá Craft.
Flottur fatnaður frá Craft.

Alhliða fatnaður

„Ásamt gönguskíðunum frá Madshus þá flyt ég inn fatamerkið Craft, sem framleiðir ýmsan sportfatnað en Craft hefur verið með þeim stærri og betri undanfarin ár í gönguskíðafatnaði. Gönguskíðafatnaðurinn er alhliða fatnaður og hentar því ekki eingöngu í gönguskíðasportið, heldur einnig vel í aðra útivist svo sem gönguferðir, hlaup og reiðhjólamennsku. Framan á fatnaðinum er oft vindhlíf sem tekur vindinn þegar verið er að renna sér. Hér í búðinni eigum við til dæmis einar bestu buxurnar á markaðnum fyrir hjólreiðar á veturna. Þetta eru í raun gönguskíðabuxur með vindhlíf framan á, en henta frábærlega í hlaup og reiðhjólamennsku. Ég hef lagt mikið upp úr því að flytja inn það sem ég veit að virkar og er góð og vönduð vara,“ segir Kristbjörn

Craftsport er staðsett að Austurvegi 2, 400 Ísafirði.
Opið er alla virka daga frá 10–18 og á laugardögum frá 11–13.
Sími: 456-3110
Netfang: craftsport@craft.is
Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðu Craftsport og Facebook-síðunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
06.06.2024

Frumsýning – Nýr Škoda Kodiaq

Frumsýning – Nýr Škoda Kodiaq
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7
Kynning
23.01.2024

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea