fbpx
Þriðjudagur 12.ágúst 2025
FókusKynning

Allt að verða uppselt – þó finna megi gullmola

Kynning

Stangaveiðifélag Reykjavíkur – SVFR

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 8. júlí 2016 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það er frábær veiði í ánum okkar núna,“ segir Ari Hermóður Jafetsson, framkvæmdastjóri Stangaveiðifélags Reykjavíkur, SVFR, en aðild að félaginu veitir forgang að veiðileyfum á mörgum af eftirsóttustu veiðisvæðum landsins þar sem færri komast að en vilja. „Við erum með um 22 ársvæði, til dæmis með Langá, Haukadalsá, Hítará og Gljúfurá, að ógleymdum Elliðaánum. Síðan erum við með urriðasvæðin fyrir norðan,“ segir Ari.

Aðild að SVFR veitir tækifæri til að sækja um veiðileyfaúthlutun félagsins sem er afar fjölsótt, sérstaklega í Elliðaárnar, og segir Ari að það fólk þurfi að skipuleggja veiði hvers árs um áramót. Einnig segir Ari að veiðin í sumar fari gríðarlega vel af stað og að nánast sé uppselt í allar ár félagsins.

„Það má segja að við séum með uppselt í sumar í laxinn. Hítará, Andakílsá, Langá, Haukadalsá og fleiri eru nánast fullbókaðar. Þó er enn hægt að finna nokkra góða gullmola inni á milli. Þannig eru enn lausir dagar í Bíldsfelli í Sogi, sem er frábært þriggja stanga laxveiðisvæði. Hentar því mjög vel fyrir litla hópa og þar má veiða á flugu, spún og maðk. Þegar við sáum fram á að vera nokkurn veginn búin með lagerinn fengum við austurbakkann í Hólsá í umboðssölu. Veiðin þar hefur farið fantavel af stað. Þetta er sex stanga svæði og fiskurinn í sumar er vel við vöxt! Að öðru leyti er ekki mikið laust nema þá kannski í Alviðru og Þrastarlundi og þá detta annað slagið inn veiðileyfi sem eru í endursölu,“ segir Ari, en bætir við: „Þess vegna mæli ég með því að fylgst sé vel með vefsölunni okkar til að ná í þessi leyfi sem detta inn. Svo borgar sig auðvitað að vera félagsmaður og tryggja sér þannig forgang að veiðileyfum á betra verði.“

Haukadalsá
Haukadalsá

Mynd: Copyright Einar Falur Ingólfsson

Auk þess að hafa betri aðgang að eftirsóttustu veiðisvæðum landsins geta félagsmenn í SVFR einnig komist í mjög ódýra veiði en SVFR er helmingseigandi í Veiðikortinu. Fá félagar Veiðikortið á 5.550 krónur en það veitir ótakmarkaðan aðgang að 35 silungsveiðivötnum.

Inntökugjald í SVFR er 22.800 krónur fyrir fullorðinn einstakling og 8.000 krónur fyrir börn og unglinga upp að 19 ára aldri. Árgjald er 11.400 fyrir fullorðna og 4.000 fyrir 67 ára og eldri og börn.

Mynd:

Auk framangreindra fríðinda fá félagsmenn aðgang að öflugu félagsstarfi SVFR og má þar nefna hnýtingarkvöld og skemmtikvöld yfir vetrartímann. Auk þess fá félagsmenn senda söluskrá í desember og tvö eintök af blaðinu Veiðimaðurinn.

Nánar má lesa um starfsemi Stangaveiðifélags Reykjavíkur á heimasíðu félagsins, svfr.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV
KynningMatur
28.07.2024

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum
Kynning
08.06.2024

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu
Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
29.03.2024

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
14.02.2024

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7