fbpx
Laugardagur 28.júní 2025
FókusKynning

GV ehf.: Jarðvegsvinna og jarðvegsflutningar

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 16. desember 2016 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Geir Þórir Valgeirsson stofnaði fyrirtæki sitt, GV ehf., í byrjun árs 2015 og lengst af hefur hann sérhæft sig í jarðvegsflutningi á byggingarsvæðum og öðrum framkvæmdasvæðum þar sem grafið er upp. Hefur Geir unnið bæði fyrir stóra og smáa aðila og tekur að sér verkefni af hvaða stærð sem er. Starfsemin víkkaði síðan út fyrir rúmlega mánuði er Geir keypti sér hjólavél og vinnur hann nú jöfnum höndum að mokstri og jarðvegsflutningum.
Þrátt fyrir að GV sé ungt fyrirtæki á Geir sér langa sögu í starfsemi af þessu tagi:

„Ég starfaði lengi hjá Nesfrakt NAV flutningastöðinni við flutninga og þar áður í jarðupptökuvinnu. Ég hef verið viðloðandi þessi tæki ansi lengi,“ segir Geir en tækjabúnaður hans samanstendur af flutningabíl, malarvagni og hjólavél. Bíllinn er Scania R580 frá Svíþjóð en Scania hefur áratugum saman verið rómað merki um allan heim. „Þetta er mitt uppáhaldsmerki og margra annarra. Ég legg mikið upp úr því að halda bílnum hreinum og snyrtilegum. Honum fylgir síðan malarvagn fyrir jarðveginn.“

Hjólavélin er heldur ekki af lakari endanum en hún er af gerðinni Liebherr og er frá Þýskalandi. Þetta er stór og öflug 18 tonna hjólavél.

GV hefur komið að byggingarframkvæmdum stórra aðila á borð við Íslenska aðalverktaka og Ístak. En fyrirtækið vinnur einnig mikið fyrir litla aðila, til dæmis einyrkja sem eru með gröfu en vantar flutningabíl. GV hefur einnig mjög gott tengslanet og því er ávallt hægt að kalla til fleiri bíla og gröfur fyrir stærri verkefni. GV leggur ávallt mikla áherslu á persónulega og góða þjónustu.

Engin yfirbygging er á fyrirtækinu og enginn milliliðakostnaður fylgir verkefnum og því getur GV boðið sanngjarnt verð: „Ég er ekki að gefa vinnuna mína en legg áherslu á að bjóða verð sem er sanngjarnt fyrir báða aðila.“

Þeir sem hafa þörf fyrir jarðvegsvinnu eða jarðvegsflutning ættu að hafa samband við GV ehf. í síma 788-1688. Einnig er fróðlegt að skoða Facebook-síðu fyrirtækisins, GV ehf á Facebook.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV
KynningMatur
28.07.2024

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum
Kynning
08.06.2024

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu
Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
29.03.2024

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
14.02.2024

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7