fbpx
Föstudagur 27.júní 2025
FókusKynning

Gjafabréf í dekur og vellíðan er góð gjöf

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 25. nóvember 2016 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Húðslípun er afar öflug og örugg húðmeðferð sem Abaco Heilsulind á Akureyri býður upp á. Meðferðin er framkvæmd með Silk Peel-húðslípunartæki. Þetta er heildræn húðmeðferð þar sem ysta lag húðarinnar er fjarlægt með notkun örsmárra kristalla og demanta. Árangurinn er sléttari, mýkri og þéttari húð, auk þess sem áferð húðarinnar verður fallegri. Húðslípun er meðferð sem hentar fólki á öllum aldri og er örugg fyrir allar húðgerðir. Strax eftir fyrstu meðferð fær húðin ferskan blæ, verður þéttari, mýkri, hreinni og unglegri.

Þessi einstaka húðmeðferð lætur húðina líta betur út og endurheimta ljóma sinn. Dauðar húðfrumur eru fjarlægðar, blóðflæði örvað og vöxtur nýrra fruma og bandvefur örvast. Meðferðin bætir áferð og vinnur gegn öldrun húðarinnar. Eldri húð sem farin er að þynnast styrkist og þéttist. Meðferðin veitir örugga hreinsun á yfirborði húðarinnar, dregur úr húðstíflum og opnar húðholur dragast saman. Sjáanlegur munur á húðinni er eftir hvert skipti og verða stöðugar framfarir á ástandi hennar.

Húðslípun vinnur meðal annars á eftirtöldum vandamálum:
Ótímabær öldrun
Fínar línur og hrukkur
Ör eftir skurði og bólur
Hörundslýti og húðþykkildi
Unglingabólur og óhrein húð
Exemhúð
Húðslit

Mælt er með að taka þrjár meðferðir með u.þ.b. tveggja vikna millibili til að ná sem bestum árangri. Fjöldi meðferða fer þó alltaf eftir á hvaða vandamáli er verið að vinna. Eitt skipti frískar verulega upp á húðina og gefur ljóma og gott útlit. Fyrir óhreina og bólótta húð er mælt með að lágmarki 6 meðferðum með tveggja til þriggja vikna millibili til að ná sem bestum árangri. Sama á við um meðferðir við húðsliti.

Eftirmeðferð

Bera skal rakakrem á meðferðarsvæði og nota rakamaska fyrstu dagana eftir meðferð. Forðast ber sól og ljósabekki í a.m.k. þrjá sólarhringa eftir meðferð. Forðast jafnframt sund og heita potta í a.m.k. þrjá sólarhringa. Sleppa skal líkamsrækt sama dag og meðferð á sér stað. Nota á SPF 30-sólarvörn eða sterkari í viku eftir meðferð.

Um Abaco Heilsulind

Abaco Heilsulind er staðsett að Hrísalundi 1 á Akureyri. Þetta er ein best búna heilsulind landsins, einstakur staður til að slaka á, endurnærast og njóta lífsins. Abaco býður viðskiptavinum sínum upp á herðanudd og kaldsteinanudd ofan í heitum potti. Steinanuddið er einstakt og mjög sérstök upplifun: Herðar, háls, bringa og andlit eru nudduð með köldum steinum, sem vekur mikla vellíðan. Þetta hentar fyrir pör og hópa. Einnig er boðið upp á andlitsmaska í pottinum.

Viðskiptavinir Abaco eru hvattir til að nýta sér aðgang að baðstofunni þegar komið er í nudd eða snyrtimeðferðir, en aðgangur er innifalinn í öllum meðferðum.
Vínveitingaleyfi er á staðnum og gestir geta hresst sig á víni, bjór eða gosdrykkjum.

Í Abaco Heilsulind er boðið upp á allar helstu snyrtimeðferðir, eins og litun og plokkun, hand- og fótsnyrtingu, vaxmeðferðir, Guinot-andlitsmeðferðir og demantshúðslípun. Abaco Heilsulind er eina stofan á Akureyri sem býður upp á St.Tropez-brúnkumeðferðir. Auk þess eru í boði lasermeðferðir til háreyðingar og til að vinna á háræðasliti. Enn fremur er til staðar frystipenni sem virkar á húðflipa og vörtur.

Boðið er upp á flestar tegundir af nuddi, eins og slökunarnudd, heilsunudd, íþróttanudd, ilmolíunudd og heit- og kaldsteinanudd. Einnig er í boði meðgöngunudd en á stofunni er sérstakur meðgöngubekkur.

Í Abaco starfa hjúkrunarfræðingur, snyrtifræðingar og nuddarar.
Í Abaco er auk þess glæsileg ljósastofa og eru fjórir Ergoline-ljósabekkir.
Hægt er að kaupa gjafabréf í Abaco Heilsulind og eru þau afar vinsæl gjöf.

Þá má geta þess að á staðnum er til sölu úrval húðsnyrtivara, meðal annars frá Guinot, Sothys, Alessandro, St. Tropez og margt fleira.

Síminn í Abaco Heilsulind er 462-3200 og netfangið er abaco@abaco.is. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðunni abaco.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV
KynningMatur
28.07.2024

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum
Kynning
08.06.2024

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu
Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
29.03.2024

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
14.02.2024

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7