fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
FókusKynning

Kviðverkir og ýmsar orsakir

Kviðverkir geta gert fólki lífið leitt – Ýmsir möguleikar í greiningu – Mikilvægt að vera vakandi

Einar Þór Sigurðsson
Sunnudaginn 13. nóvember 2016 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Teitur Guðmundsson læknir skrifar:

Hver kannast ekki við það að fá óþægindi í magann eða kviðarholið líkt og við læknar viljum gjarnan kalla það. Maginn er nefnilega bara hluti af meltingarveginum sem aftur er bara hluti þeirra líffæra sem geta gefið verki og einkenni frá kviðarholi. Dæmi um nokkur slík eru lifur, gallblaðra og briskirtill sem geta bólgnað og sýkst af ýmsum orsökum og þannig skapað verulega verki, jafnvel svo slæma að viðkomandi sjúklingur getur engan veginn slakað á. Þeir sem hafa fengið gallsteinakast þekkja það að engjast um af krampakenndum kvölum sem virðast engan endi ætla að taka.

Stingir, bólgur og magasár

Margs konar stingi er hægt að fá í tengslum við magann sjálfan, sérstaklega ef um er að ræða magabólgu sem veldur oftsinnis brjóstsviðaeinkennum sem byggja á bakflæði magasýru upp eftir vélindanu. Hjá þeim sem eru með lengra genginn vanda getur myndast magasár og jafnvel enn frekari vandi líkt og krabbamein í maga eða vélinda. Öll þensla á meltingarveginum getur ýtt undir óþægindi sem við þekkjum mætavel þegar við fáum til dæmis magapestir og slíka óværu og til að flækja málin enn frekar getur hægðatregða einnig valdið talsverðri vanlíðan. Tiltölulega algengt vandamál sem við þekkjum að valdi kviðverkjum eru ristilkrampar, en það eru endurtekin óþægindi sem geta komið upp undir álagi, spennu og kvíða, en einnig tengt mataræði og geta reynst erfið viðureignar.

Margir möguleikar í greiningu

Ýmsir upplifa óþol eða jafnvel fæðuofnæmi sem getur verið vegna glútens, mjólkur, eggja, geymsluefna og ýmissa annarra þátta og getur reynst þrautin þyngri að greina slíkt og meðhöndla svo viðunandi sé, því miður. Það eru þó alltaf að koma fram nýir möguleikar í greiningu bæði með blóðrannsóknum, húðprófunum og svo auðvitað speglun og sýnatöku úr slímhúð í meltingarvegi.

Krónískir sjúkdómar

Alvarlegri vandamál í meltingarvegi eru svokallaðir bólgusjúkdómar sem eru krónískir og geta komið fram á hvaða aldri sem er og hjá báðum kynjum, þótt algengara sé að sjúkdómarnir stingi sér niður hjá yngri einstaklingum. Þessum sjúkdómum er oft ruglað saman en á læknamáli kallast þeir Crohn’s annars vegar og Colitis Ulcerosa hins vegar. Þeir geta verið um margt líkir hvað varðar einkenni og þá líka að báðir sjúkdómarnir eru með sveiflukennda virkni svo það geta verið miserfið tímabil hjá sjúklingum. Oftar en ekki fylgja verkir og óþægindi frá kviðarholi, niðurgangur, blóð með hægðum, slappleiki, hiti og megrun svo dæmi séu tekin.

„Mataræði, lífsstíll, reykingar, streita og álag hafa mikil áhrif á þróun sjúkdómanna.“

Sjúkdómarnir eru þó gjörólíkir að því leyti að Crohn’s er ólæknanlegur og getur verið alls staðar í meltingarvegi á meðan Colitis er bundinn við ristilinn og lækningin á þeim sjúkdómi felst í því að fjarlægja hann. Slíkt er þó ekki gert fyrr en öll önnur meðferð hefur verið reynd. Mataræði, lífsstíll, reykingar, streita og álag hafa mikil áhrif á þróun sjúkdómanna. Meðferð er margbreytileg og byggir á bæði stuðningi, næringarráðgjöf, bólgustillandi lyfjum og í mörgum tilvikum skurðaðgerð.

Nauðsynlegt að greina á milli

Í kviðarholinu eru líka innri líffæri kvenna sem geta gefið margvísleg óþægindi, flestar konur þekkja það að fá verki í kringum blæðingar og jafnvel egglos, sérstaklega konur sem eru með blöðrur á eggjastokkum kannast við það þegar þær rofna að fá verki sem geta verið afar slæmir en ganga svo niður að sjálfu sér með eða án meðferðar. Nauðsynlegt er að greina á milli slíkra verkja sem eru skammvinnir og flestar konur kannast við og svo hinna langvinnu óþæginda sem geta stafað af bólgum, sýkingu og slíku sem oftsinnis fylgir þá hiti, útferð og veruleg óþægindi til viðbótar. Mjög afgerandi skyndilegir verkir, sérstaklega krampakenndir sem ætla ekki að láta undan ættu að fá fólk til að leiða hugann að uppásnúningi á eggjastokka, utanlegsfóstur komi slíkt til greina og þess háttar alvarlegri vanda.

Þvagvegirnir og nýrun geta til dæmis við myndun nýrnasteina skapað mikil veikindi og verki svo engin leið er að vera kyrr og flestir leita að lokum á sjúkrahús til meðhöndlunar. Sýkingar í blöðru geta gengið upp í nýrun og valdið verulegum veikindum hjá báðum kynjum og svo blöðruhálskirtilsbólga hjá körlum og því vert að vera vel vakandi gagnvart öllu slíku. Að öllum þessum bólgum, steinum og sýkingum í kviðarholi og nánasta umhverfi þess geta svo sjúkdómar líkt og krabbamein stungið sér niður og því nauðsynlegt hið minnsta að stunda forvarnir gegn þeim sjúkdómi almennt, sama hvaða líffærakerfi á í hlut með því að reykja ekki, stunda hreyfingu og neyta hollrar fæðu auk þess að draga úr streitu og álagi sem mest er hægt. Einungis er hægt að skima fyrir örfáum þeirra krabbameina sem geta fundist í kviðarholi og ætti enginn að gleyma því, þar er þá fyrst og fremst vert að minnast á skimun fyrir leghálskrabbameini kvenna og ristilkrabbameini beggja kynja.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum