fbpx
Föstudagur 27.júní 2025
FókusKynning

Gómsætar pítsur – glæsilegur og fjölskylduvænn veitingasalur

Kynning

Italiano Pizzeria, Hlíðasmára 15, beint fyrir ofan Smáralind

Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 13. nóvember 2016 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hinn vinsæli veitingastaður Italiano Pizzeria var stofnaður árið 2010. Eigandi staðarins í dag, Atli Þór Albertsson, hefur verið viðloðandi pítsugerð og veitingarekstur allt frá árinu 1989, er hann hóf störf á pítsustað föður síns á Seltjarnarnesi. Á Italiano eiga margir gæðastundir við að snæða gómsætar, steinbakaðar, þunnbotna pítsur – í ljúfu og þægilegu umhverfi.

Fjölskyldustaður – hópar – hlaðborð

Veitingasalurinn á Italiano er glæsilegur og tekur 70 manns í sæti. Hægt er að borða á staðnum, taka með heim eða fá sent heim. Ávallt eru í gangi tilboð í sal og til að taka með heim.

Mynd: ARON DC PHOTOS

Italiano er einstaklega fjölskylduvænn staður enda er þar flott barnahorn og barnamáltíðir á matseðlinum. Frí barnamáltíð ásamt glaðningi er í boði alla sunnudaga þegar snætt er í sal og foreldrar kaupa sér máltíð.
Það er líka tilvalið fyrir hópa að snæða á Italiano enda getur staðurinn tekið á móti allt að 70 manna hópum. Í boði er pítsuhlaðborð fyrir 10 og fleiri. Þetta er tilvalið fyrir íþróttafélög, vinnustaðahópa, afmæli eða aðra hópa sem vilja gera sér glaðan dag.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Vinsælustu pítsurnar

Sósur og deig eru gerð á staðnum og ferskleiki hráefnis í hávegum hafður.
Vinsælustu pítsurnar á matseðli staðarins eru Toscana með sósu, osti, pepperóní, sveppum, ananas, svörtum ólífum, hvítlauki, rjómaosti, svörtum pipar og óreganó, Calzone (hálfmáni) með sósu, osti, skinku, sveppum, piparosti og svörtum pipar, Parma með sósu, osti, parmaskinku, klettasalati og parmesanosti, og Como með sósu, osti, maríneruðum humri, hvítlauk og chili.

Italiano Pizzeria er að Hlíðasmára 15, Kópavogi, beint fyrir ofan Smáralind. Upplýsingar í síma 55 12345.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV
KynningMatur
28.07.2024

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum
Kynning
08.06.2024

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu
Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
29.03.2024

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
14.02.2024

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7