fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024

Óskin sem ekki rættist

Jessica gat ekki hugsað sér lífið án Bens – Ben gat ekki hugsað sér lífið með Jessicu

Kolbeinn Þorsteinsson
Miðvikudaginn 13. desember 2017 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ben og Jessica Edens voru gift og bjuggu í Greenville í Greenville-sýslu í Bandaríkjunum og ekki ástæða til að orðlengja um þá staðreynd. Þau áttu tvö börn saman, Harper, 4 ára, og Hayden, 9 ára. Jessica átti þá ósk heitasta að halda fjölskyldunni saman, vera heimavinnandi húsmóðir og einbeita sér að uppeldi barna þeirra hjóna.

Sú ósk átti ekki eftir að rætast og afleiðingarnar urðu hræðilegar.
Í apríl 2017 skildi leiðir er Ben skipti um klár í miðri á og leitaði í faðm Meredith Rahme. Jessica sat eftir með sárt ennið og börnin tvö.

Í öngum sínum

Jessica var í öngum sínum og hugsaði Ben þegjandi þörfina, sá skyldi sko finna til tevatnsins fyrir að kasta henni, hjónabandinu og börnunum fyrir róða og hreiðra um sig í dyngju Meredith.

Af orðsendingu sem Jessica skrifaði Ben að morgni 13. júlí mátti ráða að því færi fjarri að hún væri að jafna sig: „Þetta er það erfiðasta sem ég hef gert. En þú hefur brotið mig niður. Þú munt halda því áfram. Þú munt ekki fá að særa mig eða börnin mín framar.“

Hvort Ben var með böggum hildar vegna orðsendingarinnar fylgir ekki sögunni, en í ljósi niðurlags þessarar orðsendingar er slíkt ekki fráleitt: „Eftir daginn í dag mun það engu máli skipta, þá verður enginn sársauki.“

Var send yfir móðuna miklu.
Meredith Rahme Var send yfir móðuna miklu.

Jessica fær forræði

Þann 11. júní sendi Ben frá sér eiðsvarna yfirlýsingu þess efnis að Jessica beitti börnunum gegn honum, honum hefði verið meinað að tala við dóttur sína og hann sæi sér því ekki annað fært en að krefjast forræðis yfir börnunum.

Daginn eftir var úrskurðað, til bráðabirgða, í forræðisdeilunni og niðurstaðan var sú að börnin skyldu vera í umsjá móður sinnar en Ben veittur umgengnisréttur. 

Skóinn kreppti víða í Edensranni og varð það deginum ljósara 13. júlí í áframhaldandi orðsendingum milli Bens og Jessicu, því Jessicu lá ýmislegt fleira á hjarta.

Áframhaldandi orðsendingar

Í áframhaldandi skilaboðum þennan dag var Jessica ómyrk í máli. Korter yfir ellefu þennan morgun fékk Ben eftirfarandi orðsendingu: „Þú munt fá nákvæmlega það sem þú vilt. Enga konu. Engin börn.“

Jessica hélt áfram: „Það eina sem þú þurftir að gera var að slíta tengsl þín við Meredith. En nei. Þú tókst þá ákvörðun að eiga enga fjölskyldu og verður að lifa með þeirri ákvörðun.“

Af svari Bens í þetta sinn má ætla að honum hafi ekki litist á blikuna: „Hvað meinarðu „engin börn“? Ætlarðu að gera þeim mein? Eða taka þau og stinga af?“

Jessica angrar Meredith

Ben hafði ástæðu til að vera áhyggjufullur enda reynt að fá nálgunarbann á Jessicu sem var þegar þarna var komið sögu farin að venja komur sínar að heimili Meredith.

Auk þess hafði eiginkonan forsmáða sett sig í samband við 35 ættingja og vini Meredith og farið um hana ófögrum orðum og lagt á það áherslu að hún væri í sambandi við kvæntan mann.

Ben fékk ekki svar við síðustu spurningu sinni og ítrekaði hana: „Svaraðu spurningunni eða ég læt taka börnin af þér með valdi … ég meina það, Jessica.“

Svar Jessicu var, í ljósi þess sem á undan var gengið, uggvekjandi: „Lífið verður brátt betra.“ Án efa rann Ben kalt vatn milli skinns og hörunds þegar hann las svarið.

Síðustu skilaboðin

Rétt fyrir klukkan þrjú þennan eftirmiðdag spurði Jessica hvort Ben vildi hitta hana og svara nokkrum spurningum, en Ben hugnaðist slíkt ekki. Jessica skrifaði þá: „Ég ætti ekki að reikna með neinu frá þér. Ég er búin að sætta mig við þá staðreynd að ég var þér aldrei nokkurs virði. Ég er bara orðin svo þreytt á þessum sársauka.“

Klukkan 16.41 þennan dag, 13. júlí, lauk þessum samskiptum Bens og Jessicu. Í skilaboðum sagði Jessica: „Þú þarft ekki að hafa áhyggjur lengur … brátt heyrir stress þitt sögunni til. Engar áhyggjur. Verði þér að góðu. Njóttu lífsins Ben.“

Hörmuleg málalok

Um tuttugu mínútum síðar steig Meredith Rahme út úr bifreið sinni í Main and Stone-bílastæðahúsinu í miðbæ Greenville. Þar skaut Jessica Meredith í höfuðið með Glock 27-skammbyssu og lauk þar jarðvist hennar.

Síðar notaði Jessica sömu byssu til að bana börnum sínum tveimur, Harper og Hayden. Að lokum bar hún byssuna upp að eigin höfði og hleypti af. Lík þeirra þriggja fundust í jeppabifreið Jessicu sem fannst við Greenville-Pickens-þjóðbrautina með vélina enn í gangi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Allt klappað og klárt – Arne Slot tekur við Liverpool

Allt klappað og klárt – Arne Slot tekur við Liverpool
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Hafði furðað sig á liðsfélögum Gylfa – „Loksins“

Hafði furðað sig á liðsfélögum Gylfa – „Loksins“
Pressan
Fyrir 13 klukkutímum

Rappari dæmdur til dauða

Rappari dæmdur til dauða
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Langskotið og dauðafærið – Græðir þú pening um helgina?

Langskotið og dauðafærið – Græðir þú pening um helgina?
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Í forgangi að styrkja þessar þrjár stöður hjá United í sumar

Í forgangi að styrkja þessar þrjár stöður hjá United í sumar
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Áfall fyrir Chelsea – Fer í aðgerð og spilar ekki meira

Áfall fyrir Chelsea – Fer í aðgerð og spilar ekki meira
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Heitar umræður um subbulegt brot Grétars – „Það er lukka fyrir Adam Ægi að standa ekki í báðar lappirnar“

Heitar umræður um subbulegt brot Grétars – „Það er lukka fyrir Adam Ægi að standa ekki í báðar lappirnar“