fbpx
Þriðjudagur 30.apríl 2024

Afbrýðisemi dauðans

Bruno vakti yfir öllum athöfnum eiginkonu sinnar – Dag einn fékk Odile nóg

Kolbeinn Þorsteinsson
Sunnudaginn 15. október 2017 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bruno og Odile Zuliani, frá Zuydcoote í Dunkirk í Frakklandi, höfðu verið gift í fjölda ára og eignast saman þrjú börn. Frá því að hjónin rugluðu saman reytum hafði Odile ekki farið í grafgötur um að Bruno væri afbrýðisamur maður, en hún taldi sér trú um að ástæðan væri sú mikla ást sem hann bar í brjósti til hennar.

Bruno hafði verið tekið opnum örmum af allri fjölskyldu Odile sem gerði sér ekki grein fyrir hvaða mann hann hafði að geyma.

Bruno vel vakandi

Árin liðu og börnin fæddust, tveir synir og ein dóttir. Smám saman fékk Odile á tilfinninguna að verulega væri farið að þrengja að henni. Bruno fylgdist grannt með öllu því sem hún tók sér fyrir hendur.

Hann fékk sér vinnu hjá sama fyrirtæki og hún til að geta haft auga með henni þar. Odile gat ekki heimsótt ættingja sína án þess að Bruno væri með í för; hann vildi heyra allt sem þar yrði sagt.

Skilorðsbundinn dómur

Á gamlárskvöld 2010 dró til tíðinda. Þá þrengdi Bruno að hálsi Odile með sippubandi og mátti litlu muna að hún fengi ekki séð nýtt ár renna upp.

Odile hafði samband við lögreglu í kjölfarið og eiginmaðurinn fékk átta mánaða skilorðsbundinn dóm.
Við tók jafnlangur tími án stórvægilegra tíðinda, en umsvifalaust að átta mánuðum liðnum tók Bruno að niðurlægja Odile og misbjóða.

Í blíðu og stríðu

Seinna sagði Odile aðspurð hví hún hefði ekki kvartað yfir honum aftur: „Í blíðu og stríðu er það sem hjónabandið snýst um.“ Og „í stríðu“ einkenndi svo sannarlega hjónabandið því 26. nóvember, 2011, mátti litlu muna að hún léti lífið þegar Bruno reyndi að kyrkja hana aftur – í þetta skipti fyrir framan börn þeirra.

Odile ákvað að halda að sér höndum: „Að senda föður barnanna minna í fangelsi fannst mér óhugsandi.“

Nóg komið

Bruno var í meðferð hjá sálfræðingi sem upplýsti Odile um að Bruno væri andlega veikur. Odile stakk þá upp á því að hann fengi meðferð á viðeigandi stofnun, en ekkert varð úr því.

Nýtt ofbeldistímabil rann upp og í kringum áramótin 2011/2012 komst Odile að þeirri niðurstöðu að við það yrði ekki unað lengur. Hún pakkaði niður og fór, staðráðin í að sækja um skilnað, þetta yrði að taka enda.

Blóðbað

Næstu sex vikurnar hélt Odile til hjá foreldrum sínum en ákvað að kíkja til barnanna á afmælisdaginn sinn, 9. febrúar. Þegar Odile gekk inn á heimili fjölskyldunnar í Zuydcoote mætti henni óhugnanleg sýn. Yngsta barn hennar, dóttirin Emi, fimm ára, lá eins og slytti í sófanum, böðuð blóði.

Odile sneri sér við í hryllingi og sá þá Bruno þar sem hann hékk í snöru í stigaganginum.

Ekkert lífsmark

Odile var þess fullviss að Bruno hefði einnig myrt syni þeirra; Nino, 16 ára, og Limo, 14 ára. Hún treysti sér ekki til að kanna það og í fullkomnu losti hljóp hún veinandi út á götu.

Síðar kom í ljós að ályktun Odile reyndist á rökum reist; Bruno hafði stungið öll börn þeirra til bana áður en hann brá snörunni um háls sér og batt þannig enda á eigið líf.

Sárt að glata penna

Einhverju síðar setti Odile sig í samband við fyrrnefndan sálfræðing og spurði hví Bruno hefði ekki verið vistaður á viðeigandi stofnun í ljósi þess að hann var, að sögn sálfræðingsins, veikur á geði og meðferðin engan árangur borið.

Sálfræðingurinn bar af sér alla sök. „Hann lagði að jöfnu að ég missti börnin mín og að einhver glataði penna. Hann sagði við mig „Ef þú týnir penna finnst þér það sárt líka. Þér finnst sárt að að týna pennanum, alveg eins og þér finnst sárt að missa börnin þín“,“ sagði Odile í sjónvarpsþætti sem hún kom fram í.

Þannig er það.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

Maðurinn sem missti hús sitt í Reykjanesbæ á umdeildan hátt dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumenn

Maðurinn sem missti hús sitt í Reykjanesbæ á umdeildan hátt dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumenn
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Liverpool ætlar að taka þátt í kapphlaupinu við Arsenal og Manchester United

Liverpool ætlar að taka þátt í kapphlaupinu við Arsenal og Manchester United
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Sigríður Dögg segir að RÚV þurfi að gera betur: „Lítilsvirðing gagnvart konum á ekki að líðast“

Sigríður Dögg segir að RÚV þurfi að gera betur: „Lítilsvirðing gagnvart konum á ekki að líðast“
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Telja að 450.000 rússneskir hermenn hafi fallið eða særst

Telja að 450.000 rússneskir hermenn hafi fallið eða særst
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Segja samdrátt vera staðreynd í rússneska hagkerfinu

Segja samdrátt vera staðreynd í rússneska hagkerfinu
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Er þetta versta stefnumót sögunnar? Frábært kvöld þar til hún þurfti að fara á klósettið

Er þetta versta stefnumót sögunnar? Frábært kvöld þar til hún þurfti að fara á klósettið