fbpx
Mánudagur 02.febrúar 2026

Íslenskar íþróttabullur

Svarthöfði
Laugardaginn 4. maí 2019 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í vikunni fór fram mikill hitaleikur í úrslitum körfuboltans. Galvaskir Breiðhyltingar slökktu sigurvonir Vesturbæinga með þriggja stiga körfu á lokaandartökum leiksins, og boltinn sveif í fallegum boga beint í netið. Við tóku alsæluorg í öðrum enda salarins en gnístandi dauðaþögn í hinum. Svona geta nú íþróttirnar verið magnaðar. Að fólk geti sýnt slík viðbrögð við því að sveittur karl í stuttbuxum kasti leðurtuðru í gegnum járnhring.

Það sem gerðist líka á leiknum var að Martina, dóttir Borche Ilievski, þjálfara Breiðhyltinga, sýndi Kristófer Acox, leikmanni KR, tvær löngutangir þegar hann féll eftir harða rimmu. Stundum er þetta að kallað að sýna örninn, flippa einhverjum eða einfaldlega að gefa fokk-jú merki.

Íslenskur dólgsháttur á íþróttaleikjum er alltaf fyndinn, sérstaklega þegar það gerist í körfubolta eða handbolta. Bráðfyndinn. Aðeins tveir mánuðir eru síðan slagsmál áttu sér stað í bikarúrslitaleik á milli Garðbæinga og Breiðhyltinga. Sauðdrukkinn æskulýðsfulltrúi og stuðningsmaður Garðarbæjarliðsins átti þar upptökin og var rekinn út. Svarthöfði man einnig eftir því þegar Mosfellingar voru barðir í stöppu af Kópavogsbúum í bikarleik í handbolta fyrir meira en fimmtán árum. Svarthöfði flissar enn þá við þá minningu.

Í stóra samhenginu eru bullulæti á íþróttaleikjum ekkert gamanmál. Allir muna eftir stórslysum í Hillsborough og Heysel. Það er ekkert grín að lenda í knattspyrnubullum frá Bretlandi og sennilega mun verra að lenda í þeim rússnesku eða tyrknesku. Sumar bullur hafa verið hífðar upp á stall. Gerðar hafa verið kvikmyndir, og bullufélög, tengd ákveðnum fótboltaliðum, orðið fræg.

Í þessum samanburði verða íslensk bullulæti alltaf kjánaleg. Við erum svo lítil og svolítið hallærisleg líka. Það getur enginn orðið töffari eða alræmdur af því að vera íslensk körfuboltabulla. Í besta falli er hlegið að þessu fólki, sem veðrast svo upp við að horfa á leikinn að það missir alla stjórn á sjálfu sér og ræðst á náungann. Ísland er líka svo lítið land að það getur aldrei myndast þessi mikla gjá milli stuðningsmanna eins og úti í heimi. Undantekningin frá því er vitaskuld glímufélögin við Mývatn, Eilífur og Mýetningur. Svarthöfði getur vel skilið að þar geti soðið upp úr á milli stuðningsmanna.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 14 klukkutímum

Björn Jón skrifar: Æra látins manns

Björn Jón skrifar: Æra látins manns
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Liverpool vill berjast við Chelsea um unga varnarmanninn

Liverpool vill berjast við Chelsea um unga varnarmanninn
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Hörmungar tölfræði Garnacho í gær – Sérfræðingar tóku hann af lífi

Hörmungar tölfræði Garnacho í gær – Sérfræðingar tóku hann af lífi
Pressan
Fyrir 17 klukkutímum

Fasteignajöfur gerði verktaka „ósæmilegt tilboð“ fyrir að yfirgefa eiginmann sinn fyrir hann

Fasteignajöfur gerði verktaka „ósæmilegt tilboð“ fyrir að yfirgefa eiginmann sinn fyrir hann
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum
Atletico kaupir Lookman
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Þetta eru dýrustu póstnúmerin eftir einbýli og fjölbýli

Þetta eru dýrustu póstnúmerin eftir einbýli og fjölbýli
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Liverpool reynir að fá hollenska landsliðsmanninn

Liverpool reynir að fá hollenska landsliðsmanninn
Pressan
Fyrir 20 klukkutímum
Eru kettir misskildir?
Fréttir
Í gær

Dulin einkenni briskrabbameinsins sem banaði Alan Rickman

Dulin einkenni briskrabbameinsins sem banaði Alan Rickman
Pressan
Í gær

Framdi óskiljanlegan glæp gegn börnum sínum og heimiliskettinum

Framdi óskiljanlegan glæp gegn börnum sínum og heimiliskettinum