fbpx
Laugardagur 28.mars 2026
433Sport

Liverpool vill berjast við Chelsea um unga varnarmanninn

Hörður Snævar Jónsson
Sunnudaginn 1. febrúar 2026 14:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Liverpool fylgist grannt með stöðunni í kringum varnarmanninn unga Jeremy Jacquet hjá Rennes. Enska félagið hefur áhuga á leikmanninum en bíður átekta á meðan viðræður þróast.

Chelsea hefur þrýst á að ná samkomulagi um kaup á hinum 20 ára miðverði um helgina.

Rennes vill þó ekki missa hann strax og kýs frekar að halda honum út tímabilið. Franska félagið er hins vegar opið fyrir því að semja núna um sölu sem tæki gildi í sumar, sem myndi henta Liverpool betur.

Chelsea hefur þegar fengið einu tilboði hafnað og er tregt til að mæta 56 milljóna punda verðmati Rennes. Lundúnaliðið veit þó af áhuga Liverpool sem gæti haft áhrif á framhaldið.

Liverpool hefur einnig verið í sambandi við umboðsmenn fleiri varnarmanna síðustu daga, sérstaklega hægri bakvarða, þar sem félagið skoðar leiðir til að styrkja varnarleikinn fyrir lok félagaskiptagluggans á mánudag. Samkeppni um efnilega varnarmenn virðist því vera að harðna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Arsenal sagt skoða mjög öflugan framherja

Arsenal sagt skoða mjög öflugan framherja
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Þrjú ensk lið á eftir varnarmanni Barcelona

Þrjú ensk lið á eftir varnarmanni Barcelona
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Roy Hodgson tekur þjálfaraúlpuna af hillunni og tekur við liði á Englandi

Roy Hodgson tekur þjálfaraúlpuna af hillunni og tekur við liði á Englandi
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Var sterklega orðaður við Breiðablik en gerir langtíma samning við Þór

Var sterklega orðaður við Breiðablik en gerir langtíma samning við Þór
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Flugfélag með væna pillu á Arteta á afmælisdegi hans

Flugfélag með væna pillu á Arteta á afmælisdegi hans
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Telja að annað félag komi til leiks ef Barcelona kaupir hann ekki í sumar

Telja að annað félag komi til leiks ef Barcelona kaupir hann ekki í sumar
433Sport
Í gær

Grátlegt fyrir Heimi og félaga

Grátlegt fyrir Heimi og félaga
433Sport
Í gær

Liverpool til í að rústa félagaskiptametinu fyrir draumaarftaka Salah

Liverpool til í að rústa félagaskiptametinu fyrir draumaarftaka Salah