Í umfjöllun Washington Post um málið kemur fram að um allt land bíði fólk í röðum við líkbrennslur og eigi það við um daga jafnt sem nætur.
En stjórnvöld hafa ekki viljað játa að margir látist af völdum veirunnar og hefur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin WHO ítrekað hvatt þau til að segja satt og rétt frá stöðu faraldursins en það virðast kínversk stjórnvöld ekki vilja.
Gervihnattarmyndir sýna mikla umferð við líkbrennslur og hafa að minnsta kosti fjórar slíkar hætt að bjóða upp á minningarstund um hina látnu, álagið er einfaldlega of mikið. Nú fá ættingjar tvær mínútur til að kveðja hinn látna áður en líkið er brennt.
„Ég hef unnið hér í sex ár og það hefur aldrei verið svona mikið að gera,“ sagði starfskona í móttöku útfararstofu í Chongqing við Washington Post. Hún sagði að ástandið hafi verið verst í kringum jólin, síminn hafi hringt stanslaust og að starfsfólkið hafi þurft að byrja að vinna á vöktum allan sólarhringinn til að ráða við verkefnin. Kæligeymslurnar fylltust fljótt og líkbrennsluofnarnir gengu allan sólarhringinn.
Einn viðmælanda Washington Post sagðist hafa pantað tíma fyrir brennslu á líki föður síns en hafi ekki getað fengið tíma fyrr en eftir fimm daga og varð fjölskyldan að hafa líkið heima þar til hægt var að brenna það.
Kínversk stjórnvöld segja að sárafáir hafi látist af völdum veirunnar en sérfræðingar telja að um 5.000 manns látist daglega af hennar völdum.
Til að dauðsfall sé skráð af völdum veirunnar þarf viðkomandi að deyja þegar hann er í öndunarvél. Þetta hefur WHO gagnrýnt harðlega.