fbpx
Miðvikudagur 18.mars 2026
Fréttir

Starmer fær hjálp úr óvæntri átt – Segir Trump barnalegan

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 18. mars 2026 16:30

Badenoch hefur breytt um skoðun.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kemi Badenoch, formaður breska Íhaldsflokksins, segir að sífelld gagnrýni Donald Trump Bandaríkjaforseta á Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands sé barnaleg. Bretland eigi ekki að dragast út í stríðið í Íran.

Trump hefur gagnrýnt Starmer fyrir að styðja hann ekki í stríðinu við Íran og ekki vilja hjálpa til við að halda Hormússundi opnu. Hefur hann meðal annars sagt að Starmer sé „enginn Churchill“.

En líkt og aðrar Evrópuþjóðir, Japanir, Kóreumenn, Ástralir og fleiri hafa Bretar ekki vilja koma Bandaríkjunum og Ísrael til hjálpar í árásarstríði sínu gegn Íran, sem hefur brugðist við með því að loka Hormússundi og gera loftárásir á Flóaríkin.

Barnaskapur

Eins og segir í blaðinu The Guardian þá segir Badenoch að hún sé sjálf harðasti gagnrýnandi Keir Starmer. „En skilaboðin sem koma frá Hvíta húsinu eru kolröng,“ sagði hún. „Mér finnst þetta í rauninni frekar barnalegt. Það er margt sem má segja á bak við lokaðar dyr.“

Hafi þetta ekki aðeins áhrif í Miðausturlöndum og á milli bandamanna heldur sé þetta vopn í höndum óvina.

„Við erum að taka á móti Selenskí Úkraínuforseta í landinu okkar í dag. Hinir vestrænu bandamenn er að rífast innbyrðis, ég tel að þetta sendi röng skilaboð til andstæðinga okkar, í Íran og í Rússlandi,“ sagði Badenoch. „Við þurfum að styrkja böndin á milli Bretlands og Bandaríkjanna, óháð því hver sé forseti og hver sé forsætisráðherra. En skilaboðin frá Hvíta húsinu eru barnaleg.“

Stefnubreyting

Þetta er breyting frá upphafi stríðsins þegar Badenoch gagnrýndi Starmer fyrir að leyfa ekki Bandaríkjunum að nota herstöðvar á bresku landsvæði til þess að gera árásir á Íran. En eftir því sem liðið hefur á hefur komið í ljós að árásir Bandaríkjanna og Íraels voru vandræðalega vanhugsaðar og virðist sem svo að ríkin tvö séu komin út í kviksyndi. Stuðningur almennings er lítill og efnahagslega áhrif gríðarleg.

Badenoch og Íhaldsflokkurinn hafa glímt við miklar óvinsældir og eru samkvæmt könnunum orðinn þriðji eða jafn vel fjórði stærsti flokkurinn í landinu. Fylgið hefur tæst af flokknum bæði til hægri og vinstri.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Hnikarr hneykslaður eftir að hann fékk svar frá Fjársýslunni – „Var ekki ríkisstofnun sæmandi“

Hnikarr hneykslaður eftir að hann fékk svar frá Fjársýslunni – „Var ekki ríkisstofnun sæmandi“
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Pétur Gautur varar við Facebook-hópi þar sem reynt var að rústa mannorði hans

Pétur Gautur varar við Facebook-hópi þar sem reynt var að rústa mannorði hans
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Segir það þvætting að til standi að rukka fyrir Reykjanesbraut og Suðurlandsveg

Segir það þvætting að til standi að rukka fyrir Reykjanesbraut og Suðurlandsveg
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Hópárásin í Túnunum: Mætti til að innheimta skuld og endaði á sjúkrahúsi

Hópárásin í Túnunum: Mætti til að innheimta skuld og endaði á sjúkrahúsi
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Vilhjálmur áhyggjufullur: „Fyrir þann hóp myndi gjaldtaka hafa verulega íþyngjandi áhrif“

Vilhjálmur áhyggjufullur: „Fyrir þann hóp myndi gjaldtaka hafa verulega íþyngjandi áhrif“
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Nigel Farage styður nýnasista og smættar minnihlutahópa á Cameo

Nigel Farage styður nýnasista og smættar minnihlutahópa á Cameo
Fréttir
Í gær

Sverrir Norland hneykslaður – „Viðurstyggilegt við að búðarstarfsfólk þurfi að fara niður á skeljarnar og grátbiðja viðskiptavini“

Sverrir Norland hneykslaður – „Viðurstyggilegt við að búðarstarfsfólk þurfi að fara niður á skeljarnar og grátbiðja viðskiptavini“
Fréttir
Í gær

Bælingarmál séra Jakobs Rolland fréttist til Vatíkansins

Bælingarmál séra Jakobs Rolland fréttist til Vatíkansins
Fréttir
Í gær

Sjö handteknir eftir meiriháttar líkamsárás

Sjö handteknir eftir meiriháttar líkamsárás
Fréttir
Í gær

Fagna áformum um hertari refsingar við ólöglegri dreifingu á sjónvarpsefni

Fagna áformum um hertari refsingar við ólöglegri dreifingu á sjónvarpsefni