fbpx
Miðvikudagur 18.mars 2026
Fréttir

Faldi tæpar tíu þúsund evrur í skóm

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 18. mars 2026 11:30

Mynd: Google Maps

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur ákært erlendan mann fyrir peningaþvætti. Manninum, sem er á fertugsaldri, er gefið að sök að hafa um nokkurt skeið fram til 31. júlí 2025 tekið við samtals 9.950 evrum í reiðufé frá óþekktum aðila eða aðilum, og hafi honum ekki dulist að um væri að ræða ávinning af sölu og dreifingu fíkniefna og eftir atvikum öðrum refsiverðum brotum.

Segir að ákærði hafi verið með peningana falda  í skóm í póstsendingu sem hann póstlagði til Albaníu hjá Póstinum, Stórhöfða 32, þann 31. júlí 2025. „Með háttsemi sinni móttók ákærði ávinning af refsiverðum brotum, geymdi ávinninginn og leyndi ávinningnum og upplýsingum um uppruna, eðli og staðsetningu hans,“ segir í ákærunni.

Ákærða er birt fyrirkall og ákæra í Lögbirtingablaðinu og hann hvattur til að mæta fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur þann 22. apríl þegar málið verður þingfest. „Sæki ákærði ekki þing, við þingfestingu máls eða á síðari stigum þess, má hann búast við því að fjarvist hans verði metin til jafns við það að hann viðurkenni að hafa framið brot það sem hann er ákærður fyrir og dómur verði lagður á málið að honum fjarstöddum,“ segir í fyrirkallinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Leggur til að eldri borgarar fái frístundastyrk eins og börnin

Leggur til að eldri borgarar fái frístundastyrk eins og börnin
Fréttir
Í gær

Búist við hækkun stýrivaxta á morgun: „Metum það þannig að nefndin sé nauðbeygð til að hækka vexti“

Búist við hækkun stýrivaxta á morgun: „Metum það þannig að nefndin sé nauðbeygð til að hækka vexti“
Fréttir
Í gær

Þess vegna var forstjóri Deloitte sýknaður af ákæru um kynferðislega áreitni

Þess vegna var forstjóri Deloitte sýknaður af ákæru um kynferðislega áreitni
Fréttir
Í gær

Síminn á gott í vændum – Gullkýrin sem hefur bætt mikið við sig á meðan öðrum fatast flugið

Síminn á gott í vændum – Gullkýrin sem hefur bætt mikið við sig á meðan öðrum fatast flugið
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Baldvin hefur áhyggjur af því að móðir hans kemur heim í dag – „Allir benda hver á annan“

Baldvin hefur áhyggjur af því að móðir hans kemur heim í dag – „Allir benda hver á annan“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íris tannlæknir varar við algengu vandamáli – Svona geturðu komið í veg fyrir það

Íris tannlæknir varar við algengu vandamáli – Svona geturðu komið í veg fyrir það