fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
Fréttir

Sverrir Norland hneykslaður – „Viðurstyggilegt við að búðarstarfsfólk þurfi að fara niður á skeljarnar og grátbiðja viðskiptavini“

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 17. mars 2026 13:00

Sverrir gaf tíur í einkunn. Mynd/David Konecny

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rithöfundurinn Sverrir Norland segir viðurstyggilegt að starfsfólk verslana og veitingastaða sé neytt til að betla viðskiptavini um einkunnagjöf á þjónustuna eins og gert er víða í dag. Þjónustan sé einnig alltaf að minnka.

„Ég er staddur á ónefndum flugvelli og settist þar á veitingastað þar sem þjónninn vísaði mér til borðs og benti mér á að skanna QR-kóða, panta mér mat og drykk og borga svo bara í gegnum vefsíðuna,“ segir Sverrir í færslu á samfélagsmiðlum í gær. „Þjónninn útskýrði því í raun fyrir mér að honum væri algjörlega ofaukið, ég gæti gert þetta allt sjálfur.“

Þannig ferst heimurinn

Það gerði Sverrir líka, af hind og natni. En síðan kom annar maður með matinn, „flóttalegur á svip og rosalega rjóður í framan, eiginlega bleikur eins og svín á litinn,“ segir hann.

Skömmu síðar hafi fyrri þjónninn birst aftur, feimnislegur á svip, með lítinn pappírsmiða með öðrum QR-kóða. Bað hann Sverri um að gefa þjónustunni einkunn.

„Það voru eiginlega ekki nógu mörg haldbær element í þessari upplifun minni af „þjónustunni“ til að ég gæti með góðu móti metið gæði hennar en ég gaf þeim auðvitað bara tíu,“ segir Sverrir. „Þannig ferst heimurinn: not with a bang but a whimper.“

Fullt hús

Rifjar Sverrir einnig upp aðra nýlega sögu af flugvelli, það er þegar hann keypti bangsa í verslun.

„Strax að loknum þeim fjármálagerningi bað afgreiðsludaman mig um að skanna QR-kóða og gefa henni (þ.e. afgreiðsludömunni) einkunn. Fyrir að selja mér einn bangsa,“ segir Sverrir. „Það er auðvitað eitthvað viðurstyggilegt við að búðarstarfsfólk þurfi að fara niður á skeljarnar og grátbiðja viðskiptavini um að staðsetja framlag þeirra til sölunnar á tölulegum skala – en í sannleika sagt hafði ég líka bara ekki tilhlýðilega menntun og þekkingu til að geta metið hversu „vel“ hún seldi mér þennan bangsa á á tíu sekúndum. En ég gaf henni auðvitað bara fullt hús stiga. Framúrskarandi þjónusta.“

Kallað framfarir

Hefur færslan fengið mikil viðbrögð á samfélagsmiðlum. Margir hneykslast á því á hvaða stað þjónusta í dag sé komin.

„Svona er fólki talin trú um að nútíminn eigi að vera og að þetta rugl séu framfarir,“ segir fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason.

„Eina leiðnin er að yfirgefa sjálfan sig,“ segir tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens.

„Not with a bang but with a tíu,“ segir rithöfundurinn og fyrrverandi þingmaðurinn Guðmundur Andri Thorsson.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Telur árásina á Íran vera verstu ákvörðun Trumps

Telur árásina á Íran vera verstu ákvörðun Trumps
Fréttir
Í gær

Segir Jón Baldvin fara með ósannindi um sig – „Mér er ekki sama að farið sé með rangt mál“

Segir Jón Baldvin fara með ósannindi um sig – „Mér er ekki sama að farið sé með rangt mál“
Fréttir
Í gær

Kaþólska kirkjan óttast að satanistar nýti sér gervigreindina – Fjölmenn námskeið í særingum

Kaþólska kirkjan óttast að satanistar nýti sér gervigreindina – Fjölmenn námskeið í særingum
Fréttir
Í gær

Trump varar við „mjög slæmri framtíð“ fyrir NATO ef hann fær ekki það sem hann vill

Trump varar við „mjög slæmri framtíð“ fyrir NATO ef hann fær ekki það sem hann vill
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Pizza Sveins hækkaði um nærri 6 þúsund kr. á nokkrum mínútum – „Þeir vita að þetta virkar“

Pizza Sveins hækkaði um nærri 6 þúsund kr. á nokkrum mínútum – „Þeir vita að þetta virkar“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gjaldþrotakóngur í Norðurljósaferðum sakaður um kennitöluflakk

Gjaldþrotakóngur í Norðurljósaferðum sakaður um kennitöluflakk
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kom að ólýsanlegum hryllingi á gistiheimili – „Hann er að éta andlitið á henni“

Kom að ólýsanlegum hryllingi á gistiheimili – „Hann er að éta andlitið á henni“