fbpx
Mánudagur 16.mars 2026
Fréttir

Fögnuðu nafninu Kalon

Ragna Gestsdóttir
Laugardaginn 14. mars 2026 10:25

Gleði og góð stemning hjá starfsfólki Kalon

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það var góð stemning í höfuðstöðvum Icepharma þegar fyrirtækið fagnaði nýju heiti og ásýnd fyrir heildsölustarfsemi heilsu- og íþróttasviðs þess á dögunum. Nýja vörumerkið hefur fengið heitið Kalon. Nafnið á rætur að rekja til gríska hugtaksins καλόν sem merkir „hið fagra“. 

Hugtakið vísar þó ekki aðeins til ytri ásýndar heldur einnig til innri gæða og heildrænnar fegurðar. Merking hugtaksins endurspeglar nálgun starfseminnar þar sem heilsa, hreyfing og vellíðan fara saman.

Ásdís Ragna Einarsdóttir, Hrefna Rós Hlynsdóttir, Kristín Þorleifsdóttir
Bjarki Freyr Torfason, Hlynur Valsson, Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir, Dögg Ívarsdóttir, Einar F. Hólmgeirsson

Undir Kalon fellur markaðs- og sölustarf fjölda rótgróinna vörumerkja á sviði heilsu og íþrótta, þar á meðal Nike, NOW, MUNA, Speedo, Sonett og Curaprox.

,,Kalon er hugsað sem skýr og nútímaleg umgjörð utan um starfsemi sviðsins og styður við vöxt og framtíðarsýn þess. Kalon byggir starfsemi sína á traustum innviðum, áratuga langri reynslu og sterkum tengslum við birgja og viðskiptavini með sérstaka áherslu á heilsu, hreyfingu og vellíðan,“ segir Hörður Þórhallsson, forstjóri Icepharma.

Vörumerkið var þróað og hannað af Aton, þar sem Sigurður Oddsson leiddi hönnunarvinnu teymisins. Sigurður er margverðlaunaður hönnuður og hönnunarstjóri Aton. Við þróun þess var lögð áhersla á skýra og nútímalega framsetningu, og byggja grafískar einingar Kalon á hugmyndum um útgeislun, orku og innri styrk.

Davíð Berg Ragnarsson, Ásdís Ragna Einarsdóttir, Kristín Þorleifsdóttir, Birgitta Rún Birgisdóttir
Bjarni Kjartansson, Bryndís Sunna Valdimarsdóttir, Berglind Markúsdóttir, Ólafur Már Gunnlaugsson, Rúnar Valberg

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þjóðhátíðargestir lentu í vanda eftir misvísandi skilaboð frá lögreglu

Þjóðhátíðargestir lentu í vanda eftir misvísandi skilaboð frá lögreglu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einstæð móðir og sjúkraliði gagnrýnir Kópavogsleiðina – „Ekkert nema sýndarmennska og fyrirsláttur“

Einstæð móðir og sjúkraliði gagnrýnir Kópavogsleiðina – „Ekkert nema sýndarmennska og fyrirsláttur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ertu nokkuð að gleyma þér? – Síðasti dagurinn til skila er í dag

Ertu nokkuð að gleyma þér? – Síðasti dagurinn til skila er í dag
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Arnar vill ekki þurfa fjölskylduna inn á klósett til sín – Sendir Ölmu Möller opið bréf vegna málsins

Arnar vill ekki þurfa fjölskylduna inn á klósett til sín – Sendir Ölmu Möller opið bréf vegna málsins
Fréttir
Fyrir 3 dögum

„Færð bara yfir þig dembuna“

„Færð bara yfir þig dembuna“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Hætti í vinnunni vegna vanlíðunar og skertra kjara en fékk enga miskunn

Hætti í vinnunni vegna vanlíðunar og skertra kjara en fékk enga miskunn