fbpx
Þriðjudagur 10.mars 2026
Fréttir

Kristinn vill vita hvaða íslenska áhrifafólk er í tengslum við Ronald Lauder – Náinn bandamaður Trump og Netanyahu

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 10. mars 2026 20:00

Ronald Lauder er sagður hafa kveikt áhuga Trump á hernámi Grænlands.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristinn Hrafnsson, ritstjóri WikiLeaks, segist vilja vita hverjir þeir áhrifamenn á Íslandi sem hafi verið í nánum tengslum við Ronald S. Lauder. Lauder er náinn bandamaður Donald Trump og Benjamin Netanyahu og er víst sá sem kom þeirri hugmynd hjá Donald Trump að Bandaríkin yrðu að eignast Grænland.

Faðir Grænlandskrísunnar

„Víða er fullyrt að það hafi verið milljarðamæringurinn Ronald S. Lauder, erfingi Estée Lauder snyrtivörurisans, sem kom þeirri hugmynd að hjá Donald Trump að hann yrði að eignast Grænland,“ segir Kristinn í færslu á samfélagsmiðlum. „Hann beri því mikla ábyrgð á þeirri alþjóðakrísu sem spratt af kröfu Trumps um eignarhald á Grænlandi.“

Kristinn bendir á að Lauder og Trump hafi verið nánir vinir síðan á áttunda eða níunda áratugnum. En hann er einnig náinn bandamaður Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels og Victor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands.

Lauder þessi, sem er erfingi Estée Lauder snyrtivörurisans, er leiðtogi alþjóðasamtökum gyðinga, WJC, frá árinu 2007 og hefur margítrekað sakað fólk um gyðingahatur ef það hefur gagnrýnt framferði Ísraelsstjórnar, hvort sem það er vegna brota á alþjóðalögum eða vegna þjóðarmorðsins á Gaza ströndinni.

Hárblásarinn á loft

Tilgangur pistils Kristins er hins vegar að komast að því hvaða áhrifafólki hér á landi Lauder tengist. Lauder hefur sjálfur greint frá því að vera í góðum tengslum við áhrifafólk á Íslandi án þess að nefna nein nöfn.

„Lauder virðist einnig vera í nánum tengslum við áhrifafólk á Íslandi og í aðstöðu, að eigin sögn, til að beita hér þrýstingi,“ segir Kristinn og vísar í máls frá árinu 2015 þegar Reykjavíkurborg ákvað að sniðganga vörur frá Ísrael í sinni innkaupastefnu. „Aðgerðin var að mestu táknræn enda lítil viðskipti á milli Borgarinnar og Ísraels. Engu að síður varð allt vitlaust og WJC brást við með hárblásaranum,“ segir hann.

Ronald Lauder hafi þar gengið fremstur í flokki.

„Ronald Lauder hvatti íslensku ríkisstjórnina til að fordæma harðlega ákvörðun borgarinnar og grípa til aðgerða gegn sniðgöngunni. Hann bætti við að sniðgangan „gæti haft neikvæðar afleiðingar fyrir hið góða orðspor Íslands á alþjóðavettvangi“. Það þarf ekkert að fara í djúptúlkun til að sjá í þessu hótun, komandi frá milljarðamæringi og með jafn sterk pólitísk áhrifatengsl og hann hefur,“ segir Kristinn.

Beita sér á Íslandi

Upplýsingar um tengsl Lauder við Íslendinga komi fram í tilkynningu frá WJC frá þessu ári, 2015.

„Það er engum blöðum um það að fletta að erlend öfl reyna að hafa pólitísk áhrif á Íslandi hvort sem það eru MAGA liðar eða Ísraelistar (sem vitaskuld skarast talsvert). Í því ljósi væri áhugavert að vita hvaða áhrifamenn á íslandi eru í þessum „nánu tengslum“ við Ronald S. Lauder,“ segir hann að lokum.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Notkun gervigreindar breiðist út meðal íslenskra fyrirtækja en markviss innleiðing og stefnumótun sjaldgæfari

Notkun gervigreindar breiðist út meðal íslenskra fyrirtækja en markviss innleiðing og stefnumótun sjaldgæfari
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Spyr hvort Skeggi verði rannsakaður

Spyr hvort Skeggi verði rannsakaður
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Berglind fengið nóg: Sýnir skuldastöðu sína eftir að hafa borgað af lánunum árum saman

Berglind fengið nóg: Sýnir skuldastöðu sína eftir að hafa borgað af lánunum árum saman
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Kristján Már beið ósigur í fyrstu orrustunni gegn Reykjavíkurborg

Kristján Már beið ósigur í fyrstu orrustunni gegn Reykjavíkurborg