

Fremur áköf jarðskjálftahrina hófst við Eldey klukkan 12:40 í dag og hafa um 100 skjálftar mælst til þessa. Frá þessu greinir Veðurstofa Íslands. Stærsti skjálftinn hingað til mældist 2,8 að stærð en ekki hafa borist tilkynningar um að hann hafi fundist í byggð. Jarðskjálftahrinur eru fremur algengar við Eldey en jafnan verða þær vegna flekahreyfinga. Aukin spenna á Reykjanesskaga frá árinu 2020 hefur einnig aukið tíðni skjálftahrina á svæðinu. Síðast varð hrina við Eldey í desember.