fbpx
Mánudagur 13.apríl 2026
Fréttir

Stunguárás í miðborginni í nótt

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 8. febrúar 2026 09:51

Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki með beinum hætti.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karlmaður var stunginn fyrir utan skemmtistað í miðborginni í nótt. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu en ekki liggja fyrir upplýsingar um alvarleika áverkanna sem maðurinn hlaut. Hann var fluttur á slysadeild til aðhlynningar en gerandinn flúði af vettvangi og er nú leitað að lögreglu.

Lögregla greinir frá fleiri útköllum í dagbók sinni. Ölvuðum aðila var vísað á brott úr kjallara fjölbýlishúss í Hlíðunum en þar hafði hann komið sér fyrir. Í miðborginni var kallað til lögreglu eftir að maður fékk raflost við vinnu sína.

Óskað var eftir aðstoð lögreglu við skemmtistað í miðborginni þar sem maður var til vandræða. Hann brást illa við afskiptum lögreglu, braut rúðu í lögreglubifreið og kýldi lögreglumann. Hann var í framhaldinu vistaður í fangaklefa.

Í Hafnarfirði tálmaði „víðáttuölvaður“ aðili störf lögreglu. Hann var handtekinn og vistaður í fangaklefa.

Aðili var handtekinn í Breiðholti í annarlegu ástandi því hann hafði verið til vandræða.

Í Kópavogi hafði lögregla afskipti af tveim ungum drengjum sem voru að brjótast inn í bíla í hverfinu. Málið var afgreitt með aðkomu foreldra og barnaverndar.

Óskað var eftir aðstoð lögreglu í Grafarvogi vegna þjófnaðar í verslun. Í Ábænum var lögregla kölluð út vegna óláta og slagsmála. Lögreglu tókst að stilla til friðar á vettvangi.

Í hverfi 113 voru tveir handteknir og vistaðir í fangaklefa vegna líkamsárásar. Brotaþoli var fluttur á slysadeild með sjúkrabifreið.

Alls voru 89 mál skráð hjá lögreglu frá klukkan 17 í gær þar til klukkan 05 í morgun og gistu fimm í fangaklefa.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Myndband oddvita Miðflokksins vekur hörð viðbrögð – „Ertu í alvöru að aka í göngugötu og kvarta yfir skort á bílastæðum?“

Myndband oddvita Miðflokksins vekur hörð viðbrögð – „Ertu í alvöru að aka í göngugötu og kvarta yfir skort á bílastæðum?“
Fréttir
Í gær

Þykir of vænt um bæinn sinn til að þegja – „Útsvarsgreiðendur í Kópavogi borguðu fyrir hús sem þeir áttu fyrir“

Þykir of vænt um bæinn sinn til að þegja – „Útsvarsgreiðendur í Kópavogi borguðu fyrir hús sem þeir áttu fyrir“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Árni Stefán skrifar: MAST gegn MÉR – um lögleysu aðgerða MAST

Árni Stefán skrifar: MAST gegn MÉR – um lögleysu aðgerða MAST
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Faðir á Norðurlandi úrskurðaður í nálgunarbann – Dóttirin tilkynnti um ofbeldi hans til lögreglu

Faðir á Norðurlandi úrskurðaður í nálgunarbann – Dóttirin tilkynnti um ofbeldi hans til lögreglu