fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Þossi opnar á sárar minningar – „Það var farið mjög illa með mig“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 6. febrúar 2026 22:49

Þossi á vinnustað sínum. Mynd: Facebook.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Útvarpsmaðurinn þekkti, Þossi, Þorsteinn Hreggviðsson, segir að umfjöllun Kveiks um illa meðferð á drengjum í Bakkakoti í Rangárvallasýslu, hafi snert sig illa. Svo virðist sem hann hafi sjálfur gengið í gegnum sama helvíti og Bakkakotsdrengirnir.

Þetta kemur fram í stuttri, opinni færslu Þossa á Facebook-síðu hans. Segist hann hafa verið í sveit á sama svæði og eftir það hafi hann aldrei getað treyst eldra fólki:

„Nú þegar þessari viku líkur þá verð ég að viðurkenna að þessi umfjöllun hjá Kveikur kom illa við mig og ég er ekki búinn að vera mjög hress. Ég var sendur í sveit á þetta svæði þegar ég var 12 ára og það var farið mjög illa með mig, sem hefur haft allskonar áhrif líklega ásamt öðrum áföllum um hvernig ég hef aldrei getað treyst eldra fólki.“

Tekið skal fram að Þossi var á öðrum bæ en Bakkakoti, en á sama svæði.

Talið er að mun fleiri börn hafi orðið fyrir ofbeldi í Bakkakoti en níumenningarnr sem komu við sögu í umfjöllun Kveiks. Samkvæmt frétt RÚV hafa nú alls 20 manns leitað til lögmanns með mál sín og vilja leita réttar síns.

Fréttinni hefur verið breytt

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Listi Samfylkingarinnar í Reykjavík kynntur – Regína í sjöunda sæti

Listi Samfylkingarinnar í Reykjavík kynntur – Regína í sjöunda sæti
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Skatturinn vildi vita hvaðan eigandi tælenskrar nuddstofu fékk alla þessa peninga – Hún sagðist bara vera svona heppin

Skatturinn vildi vita hvaðan eigandi tælenskrar nuddstofu fékk alla þessa peninga – Hún sagðist bara vera svona heppin