fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Háttsettur rússneskur hershöfðingi særður eftir skotárás í Moskvu

Ritstjórn DV
Föstudaginn 6. febrúar 2026 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Háttsettur hershöfðingi í rússneska hernum var fluttur mikið slasaður á sjúkrahús í morgun eftir að hann varð fyrir skotárás í íbúðarhverfi í höfuðborginni Moskvu. Ekki liggja fyrir frekari upplýsingar um ástand hans, að því er segir í frétt BBC.

Um er að ræða Vladimír Alexeyev, sem gegnir stöðu í aðalstjórn rússneska herforingjaráðsins, svokallaðri GRU-leyniþjónustu hersins.

Hann er einn af æðstu embættismönnum innan stofnunarinnar og sá nýjasti í röð háttsettra rússneskra herforingja sem hafa orðið fyrir árásum í höfuðborginni frá því að innrás Rússa í Úkraínu hófst fyrir tæpum fjórum árum.

Í frétt BBC kemur fram að árásin hafi átt sér stað við íbúðablokk við Volokolamskoye-hraðbrautina í norðvesturhluta Moskvu. Ekki hefur enn verið greint frá því hver eða hverjir stóðu að baki skotárásinni.

Alexeyev hefur verið áberandi í starfsemi rússneska hersins undanfarin ár. Hann var settur á refsiaðgerðarlista Evrópusambandsins eftir að GRU var sakað um aðild að taugaeiturárás í Salisbury í Bretlandi árið 2018. Þá hefur hann gegnt hlutverki í tengslum við stríðið í Úkraínu, meðal annars tekið þátt í viðræðum við úkraínsk stjórnvöld á meðan umsátur Rússa um borgina Mariupol stóð yfir árið 2022.

Hann kom einnig við sögu þegar hann var sendur til viðræðna við leiðtoga Wagner-málaliðahópsins, Jevgení Prigozjin, í kjölfar stuttrar en blóðugrar uppreisnar hópsins í júní 2023.

Á síðustu misserum hafa nokkrar árásir verið gerðar á rússneska herforingja. Úkraínsk yfirvöld hafa í sumum tilvikum lýst yfir ábyrgð á árásunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Listi Samfylkingarinnar í Reykjavík kynntur – Regína í sjöunda sæti

Listi Samfylkingarinnar í Reykjavík kynntur – Regína í sjöunda sæti
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Skatturinn vildi vita hvaðan eigandi tælenskrar nuddstofu fékk alla þessa peninga – Hún sagðist bara vera svona heppin

Skatturinn vildi vita hvaðan eigandi tælenskrar nuddstofu fékk alla þessa peninga – Hún sagðist bara vera svona heppin