fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Helgi segir að lokunin á Vitatorgi komi ekki á óvart – Matur eldaður í heilsuspillandi húsnæði

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 3. febrúar 2026 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Framleiðslueldhúsinu á Vitatorgi hefur verið lokað eftir að bakterían Listeria monocytogenes fannst þar við reglubundna sýnatöku. Á Vitatorgi eru framleiddar meira en 900 máltíðir daglega, sem fara ýmist í heimsendingu eða eru bornar fram í félagsmiðstöðvum og þjónustuíbúðum velferðarsviðs. Er algengt að eldri borgarar fái þennan mat heimsendan.

Helgi Áss Grétarsson, varaborgarfullrúi og félagi í Miðflokknum (var áður í Sjálfstæðisflokknum) segir að lokunin á Vitatorgi komi ekki á óvart og þessi hætta hafi lengi vofað yfir. Segir hann vanda eldhússins stafa af rangri pólitískri forgangsröðun sem lýsi sér í því að borgin hafi ekki viljað flytja eldhúsið í annað leiguhúsnæði vegna þess að það væri of dýrt.

Helgi fer yfir málið í aðsendri grein á Vísir.is og segir:

„Fram kemur í hinum birtu gögnum að allar götur síðan í febrúar 2025 hafi Heilbrigðiseftirlitið metið stöðu framleiðslueldhússins á Vitatorgi alvarlega og að ástand húsnæðisins væri óviðunandi. Eigi að síður veitti Heilbrigðiseftirlitið framleiðslueldhúsinu tvívegis tímabundin starfsleyfi, það yngra var í gildi til 27. maí 2026.

Þrátt fyrir góðan vilja, til að láta starfsemi framleiðslueldhússins á Vitatorgi virka tímabundið til lok maí, þá kemur sú útkoma ekki eins og þruma úr heiðskíru lofti að loka hafi þurft eldhúsinu vegna heilsufarsáhættu.“

Óviðunandi húsnæðisvandi

Helgi segir að á sama tíma og borgin eyði fjármunum í gæluverkefni sé ekki til fjármagn til að verja grunnþjónustu borgarinnar, eins og sýni sig í þessu máli:

„Starfsfólk velferðarsviðs Reykjavíkurborgar hefur án efa gert sitt besta til að leysa úr þeirri þröngu stöðu sem starfsemi framleiðslueldhússins hefur staðið frammi fyrir undanfarið ár. Sem dæmi var á seinni helmingi ársins 2025 búið að finna heppilegt leiguhúsnæði fyrir þessa mikilvægu starfsemi. Hins vegar var hætt við að taka húsnæðið á leigu vegna þess að það var „of dýrt“.

Þetta atriði, að leysa ekki strax úr óviðunandi húsnæðisvanda framleiðslueldhússins, vegna of hárrar leigu, sýnir mat á pólitískri forgangsröðun sem ég er ósammála.

Sem sagt, á sama tíma og fjárfest er í gæluverkefnum á borð við torgagerð og þróunar hugmyndafræði á sviði jafnréttismála, er ekki til fjármagn til að verja grunnþjónustu borgarinnar á borð við þá að tryggja heilsunæmt umhverfi fyrir framleiðslueldhús sem útbýr matvæli fyrir viðkvæma hópa á borð við eldra fólk.“

Greinina má lesa á Vísir.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Reykjavíkurborg varpar ljósi á það sem er í gangi í Ölduselsskóla

Reykjavíkurborg varpar ljósi á það sem er í gangi í Ölduselsskóla
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“