

Bjarni, sem er fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu, hefur verið orðaður við framboð fyrir Sjálfstæðisflokkinn fyrir komandi sveitastjórnarkosningar og hefur verið talað um að hann komi til með að skipa 2. sætið á lista flokksins.
Bjarni sagði við Vísi á þriðjudag að hann vildi ekki tjá sig um orðróm þess efnis að hann væri á leið í framboð fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hann tók þó fram að hann væri ánægður með að fólk hefði trú á honum og hann hefði skoðanir.
Hildur Björnsdóttir verður áfram oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni og liggur ekki ljóst fyrir hvaða frambjóðendur verða í næstu sætum þar á eftir.