fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Páll timbursali segir að lögreglan hafi gefið þriðja aðila haldlagða timbrið hans

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 24. febrúar 2026 13:00

Páll timbursali í Héraðsdómi Reykjavíkur árið 2023. Mynd: DV

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Timbur sem lögregla haldlagði við rannsókn á risastóru kókaínmáli árið 2022 var, samkvæmt frétt Nútímans, afhent þriðja aðila endurgjaldslaust.

Timbrið var í eigu fyrirtækis Páls Jónssonar, sem hét Hús og harðviður ehf, en í timbursendingu til fyrirtækisins frá Brasilíu voru falin um 100 kg af kókaíni. Efnin voru flutt til Rotterdam en þar skipti lögregla efnunum út fyrir gerviefni sem síðan voru flutt hingað til lands.

Páll var ásamt þremur mönnum dæmdur til þungrar refsingar árið 2023 fyrir innflutninginn og hlaut Páll þyngsta dóminn, 10 ára fangelsi.

Páll hafði áður fengið þær upplýsingar frá lögreglu að timbrinu hefði verið fargað. Málið tengist endurupptökubeiðni á Páls á gjaldþrotamáli Húss og harðviðar, en að hans mati átti fyrirtækið 7,7 milljóna króna eign í timbrinu og búið því ekki eignalaust.

Páll segist hins vegar núna hafa fengið staðfest að lögregla hafi boðið stofnuninni Land og skógur timbrið endurgjaldslaust. Um er að ræða ríkisstofnun sem sett var á fót árið 2024 og tók yfir hlutverk Landgræðslunnar og Skógræktarinnar.

„Farið er fram á að gjaldþrot félagsins verði tekið upp að nýju, að úrskurður um gjaldþrot verði felldur úr gildi og að kröfu Skattsins verði hafnað. Jafnframt stendur bótakrafa vegna timbursins enn yfir, en hún nemur rúmlega 7,7 milljónum króna auk vaxta og kostnaðar,“ segir í frétt Nútímans en nánar má lesa um málið hér.

Sjá einnig: Harmsaga Páls timbursala – „Ég var í andlegu sjokki, hent inn í einangrun“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Reykjavíkurborg varpar ljósi á það sem er í gangi í Ölduselsskóla

Reykjavíkurborg varpar ljósi á það sem er í gangi í Ölduselsskóla
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“