fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Stefnt til viðurkenningar á faðerni en hefur aldrei séð barnið sitt

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 22. janúar 2026 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Erlend kona á þrítugsaldri sem býr í Kópavogi hefur höfðað faðernismál á hendur erlendum manni, sem einnig er á þrítugsaldri. Krefst konan þess að dæmt verði að maðurinn sé faðir drengs sem konan fæddi á Landspítalanum haustið 2022, en hún kom til landsins fyrr á því ári og var þá þunguð.

Ekki hefur tekist að hafa upp á hinum meinta föður þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir og er ekki vitað hvar í heiminum hann heldur sig. Hann hefur aldrei séð drenginn og hefur aldrei komið til Íslands.

Í stefnu málsins, sem birt var í Lögbirtingablaðinu, segir:

„Þann 6. maí 2025 lagði móðir stefnanda fram beiðni til sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu um öflun faðernisviðurkenningar á grundvelli 3.-4. gr. barnalaga nr. 76/2003. Með bréfi, dags. 22. ágúst sl. tilkynnti sýslumaður að þar sem stefndi hefði ekki sinnt boðun í viðtal til þess að tjá sig um erindið væri málinu vísað frá. Var móður leiðbeint um að leita til lögmanns og höfða dómsmál til feðrunar barnsins samkvæmt barnalögum.“

Manninum er birt fyrirkall í Lögbirtingablað9inu um að mæta á dómþing í Héraðsdómi Reykjaness þegar málið verður þingfest, þann 25. febrúar næstkomandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Prentvilla kemur í veg fyrir útburð á síbrotakonu í Bríetartúni

Prentvilla kemur í veg fyrir útburð á síbrotakonu í Bríetartúni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum