fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Nauðgaði 13 ára stúlku, faldi hana í tjaldi fyrir barnavernd og gaf henni fíkniefni

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 21. janúar 2026 18:00

Mynd: DV/Maggi gnúsari

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðssaksóknari hefur ákært mann fyrir margvísleg brot gagnvart 13-14 ára stúlku árið 2024.

Maðurinn er í fyrsta lagi ákærður fyrir nauðgun og kynferðisbrot gagnvart barninu með því að hafa í fjölda skipta haft samræði og önnur kynferðismök við hana og nýtt sér þar yfirburði sína sökum aldurs og þroskamunar, sem og þess að stúlkan var háð fíkniefnum og lyfjum. Brotin framdi maðurinn á dvalarstað sínum í íbúð, inni á salerni í verslunarmiðstöð, utandyra á ótilteknum stað og í tjaldi á öðrum ótilteknum stað.

Í öðru lagi er maðurinn ákærður fyrir sifskaparbrot með því að hafa stuðlað að því að stúlkan kom sér undan valdi og umsjá Barnaverndar Reykjavíkur en þá dvaldist hún með ákærða, meðal annars í tjaldi.

Í þriðja lagi er maðurinn ákærður fyrir að hafa veitt stúlkunni fíkniefni, þ.e. lyfið OxyContin, og hvatt hana til fíkniefnaneyslu.

Málið er rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur en þinghald er lokað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Prentvilla kemur í veg fyrir útburð á síbrotakonu í Bríetartúni

Prentvilla kemur í veg fyrir útburð á síbrotakonu í Bríetartúni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum