

Benedikt Gíslason, Davíð Stefánsson, Isabel Alejandra Díaz, Rannveig Grétarsdóttir, Rán Flygenring og Þuríður Aradóttir Braun í dómnefnd og Viðurkenningarhátíðin haldin við hátíðlega athöfn á Hótel Reykjavík Grand 28. janúar næstkomandi.
„Í ár bárust yfir 100 tilnefningar sem var bæði ánægjulegt og krefjandi verkefni fyrir okkur í dómnefndinni,“ segir Þuríður Aradóttir Braun formaður dómnefndar að þessu sinni. „Það varð mjög fljótt ljóst að við eigum ótrúlega sterkan hóp kvenna í íslensku atvinnulífi og dómnefndin, sem skipuð var öflugum einstaklingum víðs vegar úr atvinnulífinu, átti alls ekki auðvelt með valið,“ bætir hún við.

Að lokum stóðu upp úr þrjár konur sem hafa ekki aðeins skarað fram úr á sínu sviði, heldur einnig verið óþreytandi í að taka aðrar konur með sér og lyfta þeim upp og spennandi að sjá hvaða konur það eru sem verða heiðraðar á FKA viðurkenningarhátíðinni. Um er að ræða árlegan viðburð þar sem konur úr atvinnulífinu eru heiðraðar.
Á Viðurkenningarhátíð FKA á Hótel Reykjavík Grand miðvikudaginn 28. janúar fylgjumst við með þegar veittar eru viðurkenningar til þriggja kvenna sem hafa verið konum í atvinnulífinu hvatning og fyrirmynd, FKA viðurkenningin, FKA þakkarviðurkenningin og FKA hvatningarviðurkenningin.
Sérstök dómnefnd fór yfir allar tilnefningar að vanda sem bárust frá almenningi og atvinnulífinu. Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir framkvæmdastjóri Creditinfo á Íslandi, Geirlaug Þorvaldsdóttir eigandi Hótel Holts og Arnhildur Pálmadóttir arkitekt, eigandi sap arkitekta og Lendager Ísland voru heiðraðar í fyrra. Árið þar á undan voru það þær Tanya Zharov, aðstoðarforstjóri Alvotech, Inga Tinna Sigurðardóttir, stofnandi Dineout og Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja sem voru heiðraðar.
Dómnefnd FKA Viðurkenningarhátíðar 2026
Benedikt Gíslason – bankastjóri Arion banka.
Davíð Stefánsson – ráðgjafi í endurnýjanlegri orku, innviðum og alþjóðlegri verkefnaþróun.
Isabel Alejandra Díaz – sérfræðingur hjá Jafnlaunastofu.
Rannveig Grétarsdóttir – eigandi og framkvæmdastjóri Eldingar hvalaskoðunar.
Rán Flygenring – teiknari, listakona og rithöfundur.
Þuríður Aradóttir Braun – Forstöðukona markaðsstofu Reykjaness, formaður dómnefndar.
„Þessi vettvangur sem FKA hefur byggt upp er okkur gríðarlega mikilvægur. Hann minnir okkur á að við megum aldrei gleyma að hrósa fyrir það góða starf sem unnið er, þakka þeim sem vinna dag frá degi að því að gera betur í þágu jafnréttis og ekki síst að heiðra þær sem hafa rutt brautina,“ segir Þuríður.




