fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Öryggismiðstöðin stefnir fyrrverandi viðskiptavini – Hafa ekki skilað öryggiskerfinu

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 12. janúar 2026 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Öryggismiðstöð Íslands hefur stefnt heildversluninni Kpa Kitchen Iceland og krefur fyrirtækið um 390.000 krónur.

Krafan er til komin vegna þess að þegar þjónustusamningi Öryggismiðstöðvarinnar við fyrirtækið lauk skilaði Kpa kitchen Iceland ekki leigukerfinu sem sett hafði verið upp í húsnæði fyrirtækisins. Í stefnunni sem birt er í Lögbirtingablaðinu segir:

„Ofangreind dómkrafa er til komin vegna þjónustusamnings  um leigubúnað vegna fyrirtækjaöryggis að Einhellu 3C. Þess má geta að við lok samningssambandsins bar stefnda að skila leigukerfinu sem er eign stefnanda. Leigukerfi stefnanda hefur ekki verið skilað af hálfu stefnda og stefnanda hefur ekki tekist að taka niður búnaðinn, líkt og nánar er lýst í framlögðum reikningum. Þá er Kristoffer P. Andersen stefnt fyrir hönd félagsins sem stjórnarmanni þess.“

Ekki hefur tekist að birta Kpa kitchen Iceland stefnuna og er hún því birt í Lögbirtingablaðinu. Í stefnunni er að finna eftirfarandi áskorun og viðvörun:

„Hér með er skorað á Kpa kitchen Iceland ehf., kt. 570423-3980, Skipalóni 4, Hafnarfirði að greiða stefnukröfurnar nú þegar til umboðsmanns stefnanda eða koma ella fyrir dóm þegar málið verður þingfest í héraðsdómi, sem er Héraðsdómur Reykjaness, á dómþingi sem haldið verður í dómsal 1, Fjarðargötu 9, Hafnarfirði, þann 25. febrúar 2026, kl. 9.00 og svara þar til sakar og leggja fram gögn.

Verði ekki sótt þing af hálfu stefnda og/eða fyrirsvarsmanna stefnda við þingfestingu og fyrirtöku málsins geta þeir átt von á að stefnukröfurnar verði gerðar aðfararhæfar gagnvart stefnda með áritun eða dómi.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Reykjavíkurborg varpar ljósi á það sem er í gangi í Ölduselsskóla

Reykjavíkurborg varpar ljósi á það sem er í gangi í Ölduselsskóla
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“