Starfsmaður Hvals hf lék sér að getnaðarlim langreyðar sem dregin var á land í Hvalfirði í dag. Starfsmennirnir hrópuðu „Áfram Ísland“ og þjóðsöngurinn var spilaður í hátalarakerfi stöðvarinnar.
Vísir greinir frá þessu.
Tíundi hvalur vertíðarinnar var dreginn á land í dag og var hann verkaður í hvalstöðinni í Hvalfirði.
Eins og sést á myndbandi Vísis þá mátti sjá mikla kátínu hjá starfsmönnum Hvals. Svo mikla að einn starfsmaðurinn grípur um getnaðarlim hvalsins og hristir hann framan í myndavélina.
Hrópuðu starfsmennirnir „Áfram Ísland“ og bæði þjóðsöngurinn og lagið „Ég er kominn heim“ voru spiluð í hátalarakerfinu.