fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Fréttir

Ný könnun á Akureyri: Samfylkingin á stórsiglingu en óljóst hverjir geta myndað meirihluta

Kristinn H. Guðnason
Sunnudaginn 26. apríl 2026 12:00

Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir VG, Sunna Hlín Jóhannesdóttir Framsóknarflokki, Sindri S. Kristjánsson Samfylkingu, Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir Viðreisn, Hlynur Jóhannesson Miðflokki, Óðinn Svan Óðinsson L-Lista, Berglind Ósk Guðmundsdóttir Sjálfstæðisflokki og Þórhallur Jónsson Akureyrarlista.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samfylking vinnur stórsigur á Akureyri ef niðurstöður nýrrar könnunar Maskínu fyrir DV ganga eftir. Flokkurinn myndi bæta við sig tveimur bæjarfulltrúum, verða stærsti flokkurinn og núverandi meirihluti væri fallinn.

Samfylkingin stærst

Samkvæmt nýrri könnun Maskínu fyrir DV á Akureyri mælist Samfylkingin stærsti flokkurinn með 18,4 prósenta fylgi. Það myndi duga fyrir 3 bæjarfulltrúum en í síðustu bæjarstjórnarkosningum, árið 2022, hlaut flokkurinn aðeins 11,9 prósent og var fimmti stærsti flokkurinn. Samfylkingin er með 1 bæjarfulltrúa í dag.

L-Listinn mælist nærst stærsti flokkurinn á Akureyri með 17,2 prósent. Það myndi duga fyrir 2 bæjarfulltrúum. Flokkurinn hefur sífellt verið að gefa eftir síðan árið 2010 þegar hann fékk 45 prósent og hreinan meirihluta í bæjarstjórn. Í síðustu kosningum hlaut L-listinn 18,7 prósent og var enn þá stærsti flokkurinn í bænum með 3 bæjarfulltrúa. L-listinn situr í meirihluta með Sjálfstæðisflokki og Miðflokki.

Sjálfstæðisflokkurinn mælist nú með 16,7 prósenta fylgi sem myndi duga fyrir 2 bæjarfulltrúum. Það er sami fjöldi og flokkurinn náði inn í síðustu kosningum en fylgið hefur þó aðeins dregist saman samkvæmt könnuninni. Fyrir fjórum árum fékk Sjálfstæðisflokkurinn slétt 18 prósent.

Framsókn á niðurleið

Tveir flokkar mælast jafnir með 11,5 prósent. Þetta eru Framsóknarflokkurinn og Vinstri græn og myndi hvort framboðið fá 1 mann kjörinn yrði þetta raunin þann 16. maí. Staða þessarra tvegga flokka var mjög ólík fyrir fjórum árum. Þá hlaut Framsóknarflokkurinn 17 prósent og 2 menn kjörna en VG aðeins 7,3 prósent og 1 mann. Ljóst er því að annar flokkurinn er á leiðinni upp en hinn niður.

Miðflokkurinn mælist vel eins og víða annars staðar á landinu. Í könnuninni hlýtur hann 10,6 prósent og 1 mann kjörinn. Það er óbreytt bæjarfulltrúatala frá árinu 2022 en þá hlaut flokkurinn 7,9 prósent. Í þeim kosningum þurrkaðist flokkurinn út á höfuðborgarsvæðinu en hélt víða velli á landsbyggðinni, svo sem á Akureyri.

Viðreisn ný inn

Viðreisn mælist með 8,1 prósent sem myndi duga fyrir 1 bæjarfulltrúa. En flokkurinn bauð ekki fram í síðustu kosningum.

Akureyrarlistinn, undir forystu Þórhalls Jónssonar sem áður var í Sjálfstæðisflokknum, mælist með slétt 6 prósent en það myndi ekki duga framboðinu fyrir bæjarfulltrúa.

Þrjú framboð sem buðu fram árið 2022 verða ekki á kjörseðlinum í ár. Þar á meðal Flokkur fólksins, sem vann risasigur á Akureyri í þeim kosningum og hlaut 12,2 prósent og 1 mann kjörinn. Píratar og Kattaframboðið bjóða ekki fram í ár en hvorugt framboðið náði inn manni síðast.

Alls konar mynstur í boði

Verði þetta niðurstöður kosninganna er ljóst að ekki verður hægt að mynda meirihluta með sömu flokkum og síðast. Það er L-lista, Sjálfstæðisflokki og Miðflokki. Þeir gætu þó haldið velli með því að bæta til dæmis Framsóknarflokknum eða Viðreisn í samstarfið. Eða þá að þeir tveir fyrrnefndu bæti þeim við og losi sig við Miðflokkinn.

Nái Samfylkingin þessum árangri gæti hún hins vegar talið sig eiga tilkall til þess að leiða meirihluta. Til að mynda með L-lista og Viðreisn eða Framsóknarflokki eða Vinstri grænum.

Líkt og árið 2022 myndu sjö framboð ná inn bæjarfulltrúum og því ýmsir kostir til meirihlutamyndunar.

Könnunin var gerð dagana 17. til 24. apríl. 629 svarendur tóku afstöðu til flokks.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Slysið í Danmörku: Minnast Íslendingsins sem lést

Slysið í Danmörku: Minnast Íslendingsins sem lést
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

„Sonur minn var því miður ekki sá eini“

„Sonur minn var því miður ekki sá eini“
Fréttir
Í gær

Fannst látinn við Háafoss

Fannst látinn við Háafoss
Fréttir
Í gær

Björgunarsveitir kallaðar út á hæsta forgangi eftir að sást til manns í gili við Háafoss

Björgunarsveitir kallaðar út á hæsta forgangi eftir að sást til manns í gili við Háafoss
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tveir af hverjum þremur á fjárhagsaðstoð í Reykjavík eru útlendingar

Tveir af hverjum þremur á fjárhagsaðstoð í Reykjavík eru útlendingar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Eva Margrét tekur við taumunum hjá ESJA Legal ehf.

Eva Margrét tekur við taumunum hjá ESJA Legal ehf.