fbpx
Miðvikudagur 18.mars 2026
Fréttir

Hvorki mjólk né rjómi eru aðalhráefnin í tveimur þekktustu ístegundum Íslands

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 18. mars 2026 16:21

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bændablaðið hefur afhjúpað að hvorki rjómi né mjólk séu helstu aðalhráefnin í tveimur af þekktustu ístegundum landsins. Hert kókosfita og sykur eru aðalhráefnin í Mjúkísnum hjá Kjörís og svo eru það smjör og hvítur sykur sem eru aðalhráefnin í Rjómaísnum frá Emmessís. Mjólk er helsta hráefnið í ís frá Skúbb, Rjómabúinu Erpsstöðum og Holtseli.

Segir í fréttinni:

„Alkunna er að óhóflegt magn af hvers kyns sætindum og mettuðum fitum er óholl fyrir mannslíkamann og því tilefni til að velja vel þegar sætu bragðlaukarnir kalla. Við skoðun á nokkrum tegundum af vanilluís kemur í ljós að aðalinnihaldsefnið í vanilluís frá Skúbb, Rjómabúinu á Erpsstöðum og Holtaseli í Eyjafirði er nýmjólk, hjá Holtaseli og Erpsstöðum er rjómi ofarlega á lista og auk hans eggjarauður. Í Rjómaís frá Emmessís er aðalinnihalds efnið aftur á móti smjör og hert kókosfita í Mjúkís frá Kjörís.“

Bendir miðillinn á að dýrafitur séu mettaðar fitur og það sama eigi við um jurtaolíur sem hafa verið hertar. Þegar jurtaolíur eru hertar myndast í þeim transfitusýrur sem eru taldar hafa mjög slæm áhrif á æðakerfið þar sem líkaminn ræður illa við að brjóta þær niður.

Sá ís sem státar af fæstum innihaldsefnum í sínum vanilluís er Skúgg sem notar aðeins lífræna mjólk og rjóma frá Biobúi en enga frekari fitugjafa. Bændablaðið tekur fram að það sé ljóst að tækifæri séu til meiri nýtingar á mjólk, rjóma og eggjum í innlendri framleiðslu á ís. Bandaríkin hafi sett sér strangar reglur um íssölu, en þar í landi þarf ís að innihalda að minnsta kosti 10 prósent mjólkurfitu og 6-10 prósent mjólkurprótein til að teljast ís. Bretar hafi eins gert kröfu um 5 prósent mjólkurfitu og 2,5 prósent mjólkurpróteins en slakað á kröfunum síðar meir sem varð til þess að margir framleiðendur skiptu smjörinu út fyrir ódýrari fitugjafa eins og herta pálmaolíu og herta kókosolíu.

Nánar má lesa um málið hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Hnikarr hneykslaður eftir að hann fékk svar frá Fjársýslunni – „Var ekki ríkisstofnun sæmandi“

Hnikarr hneykslaður eftir að hann fékk svar frá Fjársýslunni – „Var ekki ríkisstofnun sæmandi“
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Pétur Gautur varar við Facebook-hópi þar sem reynt var að rústa mannorði hans

Pétur Gautur varar við Facebook-hópi þar sem reynt var að rústa mannorði hans
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Segir það þvætting að til standi að rukka fyrir Reykjanesbraut og Suðurlandsveg

Segir það þvætting að til standi að rukka fyrir Reykjanesbraut og Suðurlandsveg
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Hópárásin í Túnunum: Mætti til að innheimta skuld og endaði á sjúkrahúsi

Hópárásin í Túnunum: Mætti til að innheimta skuld og endaði á sjúkrahúsi
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Vilhjálmur áhyggjufullur: „Fyrir þann hóp myndi gjaldtaka hafa verulega íþyngjandi áhrif“

Vilhjálmur áhyggjufullur: „Fyrir þann hóp myndi gjaldtaka hafa verulega íþyngjandi áhrif“
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Nigel Farage styður nýnasista og smættar minnihlutahópa á Cameo

Nigel Farage styður nýnasista og smættar minnihlutahópa á Cameo
Fréttir
Í gær

Sverrir Norland hneykslaður – „Viðurstyggilegt við að búðarstarfsfólk þurfi að fara niður á skeljarnar og grátbiðja viðskiptavini“

Sverrir Norland hneykslaður – „Viðurstyggilegt við að búðarstarfsfólk þurfi að fara niður á skeljarnar og grátbiðja viðskiptavini“
Fréttir
Í gær

Bælingarmál séra Jakobs Rolland fréttist til Vatíkansins

Bælingarmál séra Jakobs Rolland fréttist til Vatíkansins
Fréttir
Í gær

Sjö handteknir eftir meiriháttar líkamsárás

Sjö handteknir eftir meiriháttar líkamsárás
Fréttir
Í gær

Fagna áformum um hertari refsingar við ólöglegri dreifingu á sjónvarpsefni

Fagna áformum um hertari refsingar við ólöglegri dreifingu á sjónvarpsefni