fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
Fréttir

Dómsmálaráðuneytið sagði ekki upp samningi um íslenskupróf

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 17. mars 2026 11:20

Dómsmálaráðuneytið er við Skúlagötu 4.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þórdís Valsdóttir, upplýsingafulltrúi dómsmálaráðuneytisins, vill koma því á framfæri að ráðuneytið hafi ekki sagt upp samningi við Mími um íslenskupróf vegna umsókna um ríkisborgararétt.

Í frétt um málið á mánudagskvöld segir að Útlendingastofnun hafi greint Stefáni Pálssyni sagnfræðingi frá því að samningi við Mími um prófin hafi verið sagt upp. Dómsmálaráðuneytið hafi hins vegar ekki tekið ákvörðun um hvernig þeim verði háttað eftirleiðis og því sé ekki hægt að auglýsa hvernig og hvenær þau fari fram. Erlendur félagi Stefáns sem búsettur er á landinu og talar prýðilega íslenskur hefur ekki komist í prófið.

Þórdís segir í ábendingu sinni:

„Samningur um framkvæmd íslenskuprófa vegna umsóknar um ríkisborgararétt var upphaflega gerður árið 2008 milli dóms- og kirkjumálaráðuneytisins og Námsmatsstofnunar. Sú stofnun, og síðar þær stofnanir sem hún sameinaðist, hafa séð um framkvæmd prófanna, nú síðast Miðstöð menntunar og skólaþjónustu (MMS). Námsmatsstofnun og síðar MMS hafa samið við einkaaðila á borð við Mími um fyrirlögn prófanna en séð sjálf um þróun og yfirferð þeirra.

MMS sagði upp fyrrgreindum samningi við ráðuneytið á síðasta ári, en samkvæmt samkomulagi sá MMS um framkvæmd þeirra út síðasta ár.

Dómsmálaráðuneytið leitaði til Háskóla Íslands með það í huga að semja um framkvæmd íslenskuprófa. Samningsgerð milli ráðuneytisins og háskólans er á lokametrunum og stefnt er að því að unnt verði að halda prófin í byrjun sumars.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Telur árásina á Íran vera verstu ákvörðun Trumps

Telur árásina á Íran vera verstu ákvörðun Trumps
Fréttir
Í gær

Segir Jón Baldvin fara með ósannindi um sig – „Mér er ekki sama að farið sé með rangt mál“

Segir Jón Baldvin fara með ósannindi um sig – „Mér er ekki sama að farið sé með rangt mál“
Fréttir
Í gær

Kaþólska kirkjan óttast að satanistar nýti sér gervigreindina – Fjölmenn námskeið í særingum

Kaþólska kirkjan óttast að satanistar nýti sér gervigreindina – Fjölmenn námskeið í særingum
Fréttir
Í gær

Trump varar við „mjög slæmri framtíð“ fyrir NATO ef hann fær ekki það sem hann vill

Trump varar við „mjög slæmri framtíð“ fyrir NATO ef hann fær ekki það sem hann vill
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Pizza Sveins hækkaði um nærri 6 þúsund kr. á nokkrum mínútum – „Þeir vita að þetta virkar“

Pizza Sveins hækkaði um nærri 6 þúsund kr. á nokkrum mínútum – „Þeir vita að þetta virkar“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gjaldþrotakóngur í Norðurljósaferðum sakaður um kennitöluflakk

Gjaldþrotakóngur í Norðurljósaferðum sakaður um kennitöluflakk
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kom að ólýsanlegum hryllingi á gistiheimili – „Hann er að éta andlitið á henni“

Kom að ólýsanlegum hryllingi á gistiheimili – „Hann er að éta andlitið á henni“