fbpx
Föstudagur 13.mars 2026
Fréttir

Hrönn vísar harðri gagnrýni á bug – Ósátt við að starfsemi kvikmyndahátíðar sé gerð „tortryggileg í útvarpi allra landsmanna“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 13. mars 2026 11:28

Hrönn Marinósdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hrönn Marinósdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri kvikmyndahátíðarinnar RIFF, hefur ásamt Þórir Ólafssyni, stjórnarformanni RIFF, sent frá sér yfirlýsingu þar sem ásökunum í garð starfseminnar, sem birtust í fréttaskýringaþættinum Þetta helst, á dögunum.

Þar steig fram í viðtali Þorbjörg Jóhannsdóttir, fyrrum starfsmannastjóri og framleiðandi hátíðarinnar, og sagði reynslu sína af starfinu „skelfilega“. Svipaða sögu hafði Guðmundur Steinn Gíslason Kjeld, starfsmaður hátíðarinnar í fyrra, að segja.

Í máli þeirra komu fram ásakanir um að forsvarsmenn hátíðarinnar greiði starfsfólki laun undir lágmarkslaunum, hafi misnotað ráðningastyrki Vinnumálastofnunnar og gangi alltof hart fram í betli. Hafi þau bæði leitað til Vinnumálastofnunar með umkvartanir sínar og Guðmundur sent bréf til Reykjavíkurborgar, ráðuneytis og Kvikmyndamiðstöðvar Íslands vegna starfsháttanna.

Hrönn veitti fréttaskýringaþættinum ekki viðtal vegna málsins, þó eftir því væri leitað, en hefur nú svarað fyrir sig í áðurnefndri yfirlýsingu. Þar er gagnrýninni alfarið vísað á bug, eins og áður segir.

Hér má lesa yfirlýsinguna í heild sinni:

Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík – RIFF hefur um árabil verið mikilvægur vettvangur fyrir íslenska og alþjóðlega kvikmyndamenningu. Hátíðin byggir starf sitt á fagmennsku, samstarfi og ábyrgri meðferð þess fjármagns sem rennur til hennar.

Í fréttaskýringaþættinum Þetta helst á Rás 1 þann 4. mars komu fram upplýsingar sem gefa ranga og/eða villandi mynd af starfsemi RIFF. Í ljósi þeirra vinnureglna sem RÚV setur sér um vandaðan og málefnalegan fréttaflutning hefði verið eðlilegt að fram kæmu fremur þær upplýsingar og gögn sem liggja fyrir um starfsemi RIFF.

Forsvarsmenn RIFF telja því rétt að leiðrétta eftirfarandi atriði þó af fleiru sé að taka:

1. Launakjör starfsfólks
Fullyrt var að RIFF hefði greitt starfsfólki laun sem væru undir lágmarkslaunum. Það er ekki rétt. Enginn starfsmaður RIFF fékk greidd laun undir lágmarkstaxta. Farið var eftir gildandi kjarasamningum.

2. Samstarf við Vinnumálastofnun

Fullyrt er að RIFF hefði misnotað úrræði Vinnumálastofnunar. Það er rangt. Vinnumálastofnun fer ætíð yfir ráðningarsamninga og kjör áður en samningar um
ráðningarstyrki voru samþykktir. Stofnunin hefur jafnframt staðfest að álag eða mannekluvandi hafi ekki leitt til þess að gerðar hafi verið undantekningar frá því verklagi. RIFF hefur ekki fengið neinar athugasemdir frá Vinnumálastofnun.

Varðandi liði 1 og 2 er rétt að taka fram að sú sem rætt var við í þættinum gegndi stöðu starfsmannastjóra hjá félaginu og var hún á góðum launum. Hlutverk hennar var að annast þessi mál, ráðningar, samskipti við starfsmenn, leysa úr málum sem upp kynnu að koma o.fl. sem tilheyrir hlutverki starfsmannastjóra. Engar upplýsingar bárust frá henni meðan hún var við störf hjá hátíðinni vegna þeirra atriða sem hún ræddi í þættinum. Hún lýsti vilja sínum til áframhaldandi vinnu hjá RIFF en vegna m.a. fjárskorts þá var ekki hægt að verða við því.

3. Fjármál og meðferð styrkja

3.1 Í umfjölluninni var einnig fullyrt að RIFF hefði misfarið með styrki eða staðið óeðlilega að fjármálum sínum. Það er rangt. Í ítarlegri úttekt KPMG á starfsemi og fjármálum RIFF, sem lauk í fyrrahaust, komu ekki fram niðurstöður sem sýndu fram á neitt misjafnt er varðar fjármál, misnotkun styrkja eða óeðlilega meðferð fjármuna. Þvert á móti liggur fyrir að rekstur hátíðarinnar hefur farið fram við krefjandi aðstæður, með takmörkuðum fyrirsjáanleika í styrkveitingum, án þess að safna skuldum eða byggja nokkru sinni reksturinn á yfirdrætti eða bankalánum.

3.2 Viðmælandinn í þættinum viðhafði ummæli á þá vegu að gengið væri harkalega eftir afsláttum eins og það væri eitthvað athugunarvert. Af hálfu RIFF er jafnan leitast við að gera góða samninga og fá þá afslætti sem mögulegt er og eru birgjar sáttir við það–annars væru þeir ekki að semja þannig. Þar sem RIFF hefur úr takmörkuðu fé að spila er reynt að nýta það sem best, kvikmyndaáhugafólki til góða. Gott væri ef þetta gilti almennt við meðferð opinbers fjár og ekki væri verið að gera það tortryggilegt í útvarpi allra landsmanna.

Starfsemi og faglegt gildi RIFF

RIFF er alþjóðlega þekkt kvikmyndahátíð sem gegnir mikilvægu hlutverki fyrir íslenska kvikmyndamenningu, kynningu íslenskra verka og tengingu íslensks fagfólks við alþjóðlegt kvikmyndasamfélag. Hátíðin laðar að sér erlenda gesti, fjölmiðla og fagfólk, skapar störf og veitir fjölmörgum tækifæri til þátttöku á hverju ári. RIFF hefur jafnframt lagt ríka áherslu á að sýna íslenskar kvikmyndir og styðja við sýnileika þeirra á alþjóðavettvangi.

Um umgjörð starfsins

Líkt og tíðkast á mörgum alþjóðlegum kvikmyndahátíðum byggir RIFF starfsemi sína bæði á fastráðnu starfsfólki, verktökum, starfsnemum og sjálfboðaliðum, allt eftir eðli verkefna og árstíðasveiflu í starfinu. Það fyrirkomulag er alvanalegt í rekstri hátíða og menningarviðburða af þessu tagi. RIFF leggur áherslu á að umræða um hátíðina sé málefnaleg og byggð á staðreyndum. Þegar alvarlegar fullyrðingar eru settar fram opinberlega verður að gera kröfu um að þær séu studdar gögnum og settar fram af ábyrgð.

Hátíðin mun áfram beina kröftum sínum að því sem skiptir mestu: að efla kvikmyndamenningu, styðja við íslensk verk og vera öflugur vettvangur fyrir kvikmyndir, samtal og alþjóðleg tengsl.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Áhrifamáttur Menntunarsjóðs Mæðrastyrksnefndar

Áhrifamáttur Menntunarsjóðs Mæðrastyrksnefndar
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Mikið fjör á Takkleikum í Smáralind

Mikið fjör á Takkleikum í Smáralind
Fréttir
Í gær

Vilhjálmur: Eitthvað alvarlega rangt við stöðuna þegar þetta gerist

Vilhjálmur: Eitthvað alvarlega rangt við stöðuna þegar þetta gerist
Fréttir
Í gær

Síminn og Sýn undirrita skilmálaskjal um kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar – Heildarvirðið metið á rúma 5 milljarða

Síminn og Sýn undirrita skilmálaskjal um kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar – Heildarvirðið metið á rúma 5 milljarða