fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Ragnar gefur lítið fyrir rök Landspítalans – Segir að Bertolli sé hert smjörlíki sem hann ráðleggur engum að borða

Ritstjórn DV
Föstudaginn 27. febrúar 2026 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ragnar Freyr Ingvarsson, læknir og oft kallaður Læknirinn í eldhúsinu, er ekki hrifinn af þeirri ákvörðun Landspítalans að taka Smjörva af boðstólnum á kaffistofum og í mataraðstöðu.

Morgunblaðið greindi frá málinu í gær og er óhætt að segja að fréttin hafi vakið athygli.

Sjá einnig: Kurr á Landspítalanum eftir að Smjörva var skipt út fyrir Bertolli

Fram kom að nú væri boðið upp á ítalska viðbitið Bertolli, en það virðist ekki hafa fallið í kramið hjá starfsfólki. Hafa einhverjir starfsmenn tekið upp á því að koma með smjör að heiman.

Haft var eftir Andra Ólafssyni, samskiptastjóra Landspítalans, að ákvörðunin hefði verið tekin þar sem Bertolli væri töluvert ódýrara í innkaupum en íslenska smjörið. Þá væri Bertolli næringarlega betur samsett vara með lægra hlutfalli mettaðrar fitu og hærra hlutfalli ómettaðrar fitu.

Í Morgunblaðinu í dag er rætt við Ragnar Frey og gefur hann lítið fyrir röksemdir þeirra sem tóku ákvörðun um þetta.

„Þetta eru gjörunnin matvæli og mér finnst það koma spánskt fyrir sjónir að spítalinn sé að bjóða upp á slík matvæli,“ segir hann við blaðið og bætir við að Bertolli sé einfaldlega hert smjörlíki. „Mér finnst smjörlíki ekki vera til manneldis og ráðlegg engum að borða það.“

Bendir hann á að hlutfall ólífuolíu sé undir 10 prósentum og restin sé hreinsuð fræolía. Fyrir utan það sé Bertolli innflutt vara og kolefnissporið meira. Sjálfur telur Ragnar að smjörið sé hollt og spítalinn eigi að sjálfsögðu að kaupa íslenskt smjör og Smjörva.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Prentvilla kemur í veg fyrir útburð á síbrotakonu í Bríetartúni

Prentvilla kemur í veg fyrir útburð á síbrotakonu í Bríetartúni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum