

Vísindamaðurinn Sævar Helgi Bragason, títt nefndur Stjörnu-Sævar, segir gervigreindina plágu sem sé búin að skemma internetið. Ljótar og lélegar gervigreindarmyndir af sólmyrkva flæði nú um netið.
„Gervigreindin er plága sem er (búin?) að skemma internetið,“ segir Sævar Helgi í færslu á samfélagsmiðlum. „Samfélagsmiðlar eru stútfullir af ljótum myndum og stórkostlega ýktum eða röngum upplýsingum sem fá því miður vængi í gölluðum reikniritum samfélagsmiðlanna.“
Nefnir hann sem dæmi myndir af sólmyrkvanum á Suðurskautslandinu fyrir skemmstu. Engar alvöru myndir náðust af þessum myrkva enda sást hann einungis á mjög afskekktum stað. En með gervigreind hafi fólk framkallað hræðilegar myndir.
„Á næstu vikum og mánuðum mun þetta bara aukast þegar nær dregur myrkvanum okkar,“ segir Sævar Helgi. Það er almyrkvinn sem mun sjást á vesturhluta landsins þann 12. ágúst næstkomandi. Mikil eftirvænting er eftir þeim myrkva og búist er við holskeflu ferðamanna.
Nefnir hann að „fróðleikur“ sem gervigreindin veitir um sólmyrkva sé að miklu leyti bull. Til að mynda plaggat sem nú gengur um netheima og er með rangar dagsetningar á sólmyrkvum og rangar upplýsingar um þá. Einnig gervigreindarmyndir sem sýna sólmyrkva á rangan hátt. En „fróðleik“ eins og þessum hefur verið deilt í þúsundum skipta á samfélagsmiðlum.
„Bullið og ljótleikinn sem vellur upp úr gervigreindinni mun því miður kaffæra réttar upplýsingar og fallegar myndir af raunveruleikanum sem er svo miklu, miklu stórkostlegri en nokkur tölvugerð mynd,“ segir Sævar Helgi. „Mér finnst gervigreindin, spunagreind eins og ChatGPT og allt það drasl, langversta „tæknibylting“ sem ég hef upplifað. Sem betur fer virðast þjófóttu fyrirtækin sem eiga sök á þessu ekki geta grætt peninga á þessu. Megi svo vera áfram.“
Segir hann ástandið farið að minna á vísindaskáldskap. Og ekki á góðan hátt.
„Það er stundum eins og forsvarsmenn þeirra haldi að dystópíska framtíðarsýnin sem birtist í vísindaskáldskap sé leiðarvísir en ekki varnaðarorð. Svo mikið óskaplega vona ég að þetta rusl springi í tætlur,“ segir Sævar Helgi harðorður.