fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Ákærður fyrir líkamsárás á son sinn

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 28. janúar 2026 14:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maður á fertugsaldri hefur verið ákærður fyrir líkamsárás og barnaverndarbrot vegna atvika á þáverandi heimili ákærða í Reykjanesbæ, á gamlársdag árið 2023.

Ákærði er sakaður um að hafa þá tekið hálstak á syni sínum með báðum höndum og þrýst honum upp við borð. Voru afleiðingar árásarinnar þær að sonurinn, sem þá var 16 ára, hlaut yfirborðskennda áverka á hálsi, þ.e. roða og húðbólgu hægra megin á hálsi, ásamt verki í kvið.

Fyrir hönd sonarins er gerð einkaréttarkrafa í málinu um miskabætur að fjárhæð 1,5 milljónir króna.

Ekki hefur tekist að birta ákærða ákæru í málinu og var hún birt í Lögbirtingablaðinu í dag, þar sem ákærða er jafnframt birt fyrirkall.

Málið verður þingfest við Héraðsdóm Reykjaness þann 10. mars næstkomandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Listi Samfylkingarinnar í Reykjavík kynntur – Regína í sjöunda sæti

Listi Samfylkingarinnar í Reykjavík kynntur – Regína í sjöunda sæti
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Skatturinn vildi vita hvaðan eigandi tælenskrar nuddstofu fékk alla þessa peninga – Hún sagðist bara vera svona heppin

Skatturinn vildi vita hvaðan eigandi tælenskrar nuddstofu fékk alla þessa peninga – Hún sagðist bara vera svona heppin