fbpx
Sunnudagur 01.mars 2026
Fréttir

Škoda Auto þriðja söluhæsta bílamerki Evrópu

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 20. janúar 2026 11:57

Skoda Elroq

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikill vöxtur hefur verið hjá Škoda undanfarin ár en Škoda afhenti alls 1.043.900 bíla til viðskiptavina um allan heim árið 2025, sem er 12,7% aukning milli ára og besti árangur merkisins síðustu sex ár. Í Evrópu afhenti Škoda 836.200 bíla og varð þar með þriðja söluhæsta bílamerki á Evrópumarkaði, eins og segir í tilkynningu.

Hröð rafvæðing var lykilþáttur í árangrinum. Afhendingar rafbíla tvöfölduðust í 174.900 bíla, og tengiltvinnbílar voru 43.800. Mikil eftirspurn eftir rafbílunum Elroq og Enyaq lyfti Škoda í fjórða sæti meðal rafbílaframleiðenda í Evrópu. En Elroq átti góðu gengi að fagna og var valinn bíll ársins í flokki rafdrifinna fjölskyldubíla 2025 af WhatCar?

Octavia hélt stöðu sinni sem söluhæsta gerð Škoda á heimsvísu með 190.300 afhendingar, á eftir komu Kodiaq, Kamiq og Fabia. Þýskaland var áfram stærsti markaður Škoda, en mikill vöxtur var einnig á Indlandi þar sem markaðshlutdeild Škoda nánast tvöfaldaðist.

Nýr Skoda Epic er væntanlegur síðar á árinu

Samkvæmt tilkynningu frá Heklu, sem er umboðsaðili Škoda á Ísland var einnig mikill vöxtur hjá Škoda á Íslandi árið 2025, en met var sett í sölu rafbíla merkisins og vó þar nýi rafbíllinn Elroq þyngs. Viðtökur við nýliðanum sem kallaður hefur verið “litli bróðir Škoda Enyaq” fóru fram úr björtustu vonum enda um frábæran bíl að samkvæmt Jóni Kristóferi S. Jónssyni vörumerkjastjóra Škoda á Íslandi.

Síðar á árinu 2026 mun Škoda svo kynna tvær nýjar alrafmagnaðar gerðir, borgar-SUV-inn Epiq og sjö sæta fjölskyldu-SUV-inn Peaq, sem munu þar með tvöfalda rafbílaframboð merkisins.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Listi Samfylkingarinnar í Reykjavík kynntur – Regína í sjöunda sæti

Listi Samfylkingarinnar í Reykjavík kynntur – Regína í sjöunda sæti
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Skatturinn vildi vita hvaðan eigandi tælenskrar nuddstofu fékk alla þessa peninga – Hún sagðist bara vera svona heppin

Skatturinn vildi vita hvaðan eigandi tælenskrar nuddstofu fékk alla þessa peninga – Hún sagðist bara vera svona heppin