

Næturvaktin var annasöm hjá lögreglu á höfuðborgarsvæðinu, 81 mál er skráð frá kl. 17-5 í morgun og sex vistaðir í fangageymslu lögreglu. Á meðal verkefna lögreglustöðvar 1 sem annast miðborgina voru:
Tveir leigubílstjórar óskuðu eftir aðstoð lögreglu vegna hvor annars. Annar sakaði hinn um líkamsárás en hinn um að hafa ekið svo mikil hætta var af. Málið afgreitt á vettvangi þar sem skýrslutaka fór fram.
Tilkynnt um eld í fjölbýlishúsi. Mikill reykur og eldur í íbúð er lögregla kom á vettvang. Slökkvilið annaðist slökkvistarf og tók lögregla við vettvangi eftir að því lauk. Málið er til rannsóknar.
Óskað var aðstoðar lögreglu vegna umferðarslyss. Ein bifreið flutt af vettvangi þar sem hún var óökufær. Ekki slys á fólki.
Tilkynnt um ofurölvaða konu í miðbæ Reykjavíkur. Er lögregla kom á vettvang var konan sjáanlega ölvuð en viðræðuhæf. Hún afþakkaði alla aðstoð lögreglu og hélt sína leið.
Tilkynnt um yfirstaðna líkamsárás sem átti sér stað á krá. Árásaraðili var sagður vera fyrir utan. Er lögregla kom á vettvang voru báðir aðilar, árásarþoli og árásaraðili, farnir og því ekki aðhafst frekar.
Kona handtekin eftir að hafa ekið á aðra bifreið, yfirgefið vettvang án að gera ráðstafanir og er hún grunuð um að hafa ekið bifreiðinni undir áhrifum áfengis. Hún vistuð í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins.
Óskað aðstoðar lögreglu og kvaðst tilkynnandi hafa orðið fyrir líkamsárás af hendi dyravarða. Málið í rannsókn.
Lögreglan í Hafnarfirði stöðvaði nokkra einstaklinga við almennt umferðareftirlit. Nokkrir eru grunaðir ýmist um akstur áhrifum áfengis, að aka sviptir ökuréttindum, eða gegn rauðu ljósi. Ökumenn voru lausir að lokinni sýna- og/eða skýrslutöku.
Þrír voru handteknir í Kópavogi eftir að tilkynnt var um eld í einbýlishúsi. Slökkvilið annaðist slökkvistarf og tók lögregla við vettvangi eftir að því lauk. Þrír voru handteknir á vettvangi grunaðir um íkveikju og vistaðir í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins. Málið til rannsóknar.
Tveir ökumenn voru sektaðir fyrir að hafa stöðvað ökutæki og lagt og ekki gegnið frá því með tryggilegum hætti. Vettvangsskýrsla rituð vegna málanna
Í Grafarvori var óskað aðstoðar vegna flugeldaslyss. Er lögregla kom á vettvang mátti sjá að tjónþoli, sem var barn undir lögaldri, var sárþjáður og mátti sjá áverka á hönd barnsins. Hann færður í sjúkrabifreið sem flutti hann á bráðamóttöku til frekari skoðunar.