fbpx
Föstudagur 31.október 2025
Fréttir

Þrettán nýir veitingastaðir opna í Smáralind – Sjáðu listann

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 26. ágúst 2025 14:20

. Gleðin var við völd þegar veitingaaðilar og starfsfólk Heima og Smáralindar komu saman. Mynd/Anton Bjarni

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fasteignafélagið Heimar og Smáralind hafa skrifað undir samning við þrettán veitingaaðila um opnun veitingastaða á nýju og stórglæsilegu veitingasvæði í austurenda Smáralindar sem opnar í haust.

Í tilkynningu frá Heimum kemur fram að með nýja veitingasvæðinu styrkist veitinga- og afþreyingarflóra Smáralindar með fjölbreyttara úrvali veitinga sem höfðar til hópa í mismunandi erindagjörðum, allt frá fólki í leit að fljótgerðum og aðgengilegum mat yfir í hágæða matarupplifun.

„Veitingasvæðið verður mikil lyftistöng fyrir þær tugþúsundir sem búa og starfa í kringum Smáralind og verður kærkomin viðbót í veitingaflóru svæðisins, hvort sem er á daginn eða á kvöldin,“ segir í tilkynningunni.

Af þeim þrettán veitingastöðum sem opna á nýja veitingasvæðinu eru tíu nýir í Smáralind og nokkrir sem hingað til hafa aðeins verið í miðbæ Reykjavíkur. Þá kemur veitingastaðurinn Hjá Höllu, sem margir þekkja frá Grindavík og flugstöðinni, auk tveggja alveg nýrra veitingastaða.

Veitingastaðirnir sem verða hluti af nýja veitingasvæðinu í Smáralind eru: Djúsí Sushi, Funky Bhangra, La Trattoria, Hjá Höllu, Fuego, Neo pizza, Yuzu borgarar, Gelato ís, Sbarro, Serrano, Subway, Top wings og 5 Spice by XO.

„Við höfum fengið til liðs við okkur farsælustu veitingaaðila landsins til að sjá um matarupplifunina á þessu nýja svæði í Smáralind. Svæðið sjálft er hannað af Javier Bootello og hans fólki hjá Basalt arkitektum og hugsunin er að þarna geti fólk komið saman, notið góðs matar og átt huggulega stund í fallegu umhverfi hvort sem það er í hádeginu eða á kvöldin,” segir Baldur Már Helgason, framkvæmdastjóri viðskipta hjá Heimum, í tilkynningunni.

Gleði og eftirvænting sveif yfir vötnum þegar starfsfólk Heima og Smáralindar og rekstraraðilar nýju veitingastaðanna komu saman til að innsigla samstarfið. Búist er við að framkvæmdum ljúki á næstu vikum og að hægt verði að opna nýju veitingastaðina um mánaðamótin október/nóvember.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Biður um að dóttir hans verði ekki skilgreind út frá húðlit – „Pabbi, af hverju segja krakkar að ég sé svört?“

Biður um að dóttir hans verði ekki skilgreind út frá húðlit – „Pabbi, af hverju segja krakkar að ég sé svört?“
Fréttir
Í gær

Kjartan vill einkunnir í tölustöfum – „Almenningur skilur ekki bókstafakerfið og vill ekki sjá það“

Kjartan vill einkunnir í tölustöfum – „Almenningur skilur ekki bókstafakerfið og vill ekki sjá það“
Fréttir
Í gær

Ólafur: „Við vissum að eitthvað hræðilegt hafði gerst“ – Þetta er það sem særir enn í dag

Ólafur: „Við vissum að eitthvað hræðilegt hafði gerst“ – Þetta er það sem særir enn í dag
Fréttir
Í gær

Dagur segir að enginn tali um bleika fílinn – „Þessa þögn verður að rjúfa“

Dagur segir að enginn tali um bleika fílinn – „Þessa þögn verður að rjúfa“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Björn ómyrkur í máli: Ísland dýrasta ferðamannaland í heimi – Vont gæti versnað verði þetta að veruleika

Björn ómyrkur í máli: Ísland dýrasta ferðamannaland í heimi – Vont gæti versnað verði þetta að veruleika
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hörmungar á Gaza í nótt: 60 drepnir í nótt, þar á meðal mörg börn

Hörmungar á Gaza í nótt: 60 drepnir í nótt, þar á meðal mörg börn