fbpx
Sunnudagur 29.júní 2025
Fréttir

Skilur ekki aðför SFS að strandveiðisjómönnum – „Veit ekkert af hverju við erum svona ógurlega mikil ógn við þau“

Ragna Gestsdóttir
Sunnudaginn 29. júní 2025 12:30

Kjartan Páll Sveinsson. Mynd: Skjáskot YouTube.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kjartan Páll Sveinsson, formaður félags strandveiðimanna, er i nýjasta viðtali Sjókastsins. Þegar umræðan kemur að kvótakerfinu, segist Kjartan Páll ekki hafa neina skoðun á því sem formaður Strandveiðifélagsins.

„Það sem að ég legg áherslu á er að við fáum að bara hafa lífsviðurværi af okkar útgerð. Mér er í rauninni alveg sama hvað stóra útgerðin gerir, þannig lagað séð, og kvótakerfið sem slíkt. Og þá er ég að tala sem formaður Strandveiðifélagsins, að það kemur mér þannig lagað séð ekkert við. Það er samtal á milli kvótahafa og þjóðarinnar og ég sem Íslendingur, ég get haft mínar skoðanir, en sem formaður Strandveiðifélagsins, þá hef ég bara ekki skoðun á því.“

Kjartan Páll segir að litið hafi verið á strandveiðisjómenn sem „einhverja aukastærð eða aðskotahlut eða olnbogabörn, eða hvað sem maður á að kalla það. Við höfum alltaf verið í þriðja sæti innan fiskveiðistjórnunarkerfisins.“

Segir hann þá eiga að vera jafnréttháa og í rauninni þá ættu strandveiðimenn að vera í ákveðnum forgangi.

„Það er út af byggðasjónarmiðunum, það er út af náttúrusjónarmiðunum eða umhverfisskaðanum, það er út af hagkvæmninni og það er út af mannréttindunum. Vegna þess að náttúrulega kerfið var sett á 2009 sem viðbragð við áliti mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna að þetta bryti á rétti einstaklinga til að vinna og búa þar sem að þeir vilja vinna og búa. Þannig að út af þessum fjórum þáttum þá finnst mér að við ættum að vera í ákveðnum forgangi.“

Segir hann strandveiðimenn búna að vinna umræðuna þegar kemur að umhverfissjónarmiðum og byggðasjónarmiðum.

„En það er kannski svolítið tvísýnt með hagkvæmnisdebattið. Og ég held að það sé bara ekkert, þær tölur séu ekkert til alveg á hreinu. En við náttúrulega seljum okkar fisk á tuttugu prósent hærra verði út úr búð í Bretlandi heldur en togarafisk. Þannig að það hlýtur að vera einhver akkur í því að fá tuttugu prósent hærra verð fyrir útflutningsvöru heldur en tuttugu prósent lægra verð.“

Aðspurður um hvort það sé besta aðferðin að taka þessa umræðu segist Kjartan Páll velta því fyrir sér.

„Við erum bara með þennan þrönga ramma. Ef væri losað um nokkur göt á spennitreyjunni. En alla vegana, til þess að svara spurningunni, við verðum að gera það. Okkur er ýtt út í þetta vegna þess að það eina sem að stendur í vegi fyrir að við náum að lifa á þessu, það er SFS og stór útgerðin. Að þau eru að djöflast og pönkast í okkur eins og enginn sé morgundagur og ég veit ekkert af hverju. Ég veit ekkert af hverju við erum svona ógurlega mikil ógn við þau. En þau eru það eina sem standa í vegi fyrir því og þau eru náttúrulega að dæla öllum þessum rógburði á okkur.“

Kjartan Páll segir að hægt sé að ræða endalaust fram og til baka hvað er hagkvæmni og hvað er þjóðhagsleg hagkvæmni og annað slíkt. „En við erum að greiða meira inn í ríkiskassann heldur en við tökum út úr honum. Það er ekki nokkur einasta spurning. Þetta er byggðastefna sem kostar ríkið ekki krónu. „Við megum ekkert missa sjónar á því að þetta er bara hluti af því sem gerir okkur að Íslendingum. Þetta er elsta atvinnugrein á Íslandi. Þetta er elsta veiðiaðferð í mannkyninu. Og hún virkar ennþá. Og hvað er meira eða minna hagkvæmt? Við erum að skila jákvæðri afkomu ár eftir ár og afkoman á strandveiðum er bara svipuð eins og afkoman í ferðaþjónustunni. Og það dettur engum í hug að segja að ferðaþjónustan sé efnahagsleg sóun.“

Hlusta má á viðtalið við Kjartan Pál og önnur viðtöl Sjókastsins í heild sinni á YouTube og Spotify. 

Umræðan um kvótakerfið hefst á mínútu 0:34:40.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Horfni fiðluleikarinn og grunsamlega vinkonan með skuggalegu fortíðina – Gerði leigusamning um íbúð á Selfossi eftir hvarfið

Horfni fiðluleikarinn og grunsamlega vinkonan með skuggalegu fortíðina – Gerði leigusamning um íbúð á Selfossi eftir hvarfið
Fréttir
Í gær

Lýsa yfir megnri óánægju og hneykslan með ákvörðun Hæstaréttar – Ætla að greiða málskostnaðartryggingu unga öryrkjans

Lýsa yfir megnri óánægju og hneykslan með ákvörðun Hæstaréttar – Ætla að greiða málskostnaðartryggingu unga öryrkjans
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áhugamenn um tölvuleiki og knattspyrnu eflaust kátir – Mannanafnanefnd samþykkir eiginnöfnin Link og Baggio

Áhugamenn um tölvuleiki og knattspyrnu eflaust kátir – Mannanafnanefnd samþykkir eiginnöfnin Link og Baggio
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kristján: Íslendingar þurfa að taka sér tak – „Þetta fólk hverfur inn í myrkur og þögn“

Kristján: Íslendingar þurfa að taka sér tak – „Þetta fólk hverfur inn í myrkur og þögn“