fbpx
Fimmtudagur 26.júní 2025
Fréttir

RÚV braut gegn siðareglum blaðamanna með ámælisverðum hætti í máli Ásthildar Lóu

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 26. júní 2025 11:02

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

RÚV og fréttamaðurinn Sunna Karen Sigurþórsdóttir brutu gegn siðareglum blaðamanna með umfjöllun um mál Ásthildar Lóu Þórsdóttur, fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra. Þetta kom fram í úrskurði siðanefndar Blaðamannafélags Íslands þann 23. júní sl.

Málið varðar frétt sem fyrst birtist með fyrirsögninni: „Barnamálaráðherra átti barn með unglingspilti sem hún leiðbeindi“ en fyrirsögninni var síðar breytt í „Barnamálaráðherra átti barn með unglingspilti sem hún kynntist í trúarsöfnuði“. Fréttin fjallaði um að fyrir rúmum þremur áratugum hefði Ásthildur átt í ástarsambandi við 15 ára dreng, þá 22 ára sjálf. Í fréttinni voru reifuð ákvæði almennra hegningarlaga, svo sem að óheimilt sé að eiga samneyti með einstaklingi undir átján ára aldri ef viðkomandi er til dæmis kennari eða leiðbeinandi og tekið fram að það sama eigi um ef maður á samræði við einstakling undir 18 ára aldri sem er háður viðkomandi fjárhagslega, í atvinnu sinni eða skjólstæðingur í trúnaðarsambandi. Tekið var fram að brot sem þessi geti varðað allt að þriggja ára fangelsi.

Siðanefnd rekur að Ásthildur hafi í maí farið fram á að RÚV leiðrétti ýmsar rangfærslur í fréttinni, svo sem aðdróttanir um refsivert athæfi sem Ásthildur taldi birtast í fréttinni. RÚV taldi ekki tilefni til leiðréttingar.

Ekki brot gegn siðareglum

Ásthildur taldi pott víða brotinn í vinnubrögðum RÚV við fréttaflutning af málinu, fyrir það fyrsta hafi verið fullyrt að ástarsamband hennar og barnsföður hafi byrjað áður en hann var sjálfráða sem sé rangt og eins hafi hún ekki verið að leiða unglingastarf í söfnuðinum þar sem þau kynntust. Ásthildur gerði eins athugasemdir við að hafa ekki fengið að koma sjónarmiðum sínum á framfæri áður en fyrsta frétt birtist og gagnrýndi að RÚV hefði ekki leiðrétt efnislega rangar fréttir sem ríkismiðillinn sendi áfram á kollega sína í Sambandi evrópskra sjónvarpsstöðva. Siðanefnd vísaði þessum kæruliðum frá.

Brot gegn siðareglum

Loks taldi Ásthildur það brjóta gegn siðareglum að vísa til núgildandi lagaákvæða um sjálfræðisaldur og hegningarlaga. Með því hafi verið ályktað um refsivert athæfi hennar en með einfaldri gagnaöflun hefði RÚV getað kynnt sér hvaða lög voru gildandi þegar atvik máls áttu sér stað. Siðanefnd tók undir að þetta hefði brotið gegn siðareglum.

RÚV tók fram að umfjöllun um lagaákvæði hafi átt að varpa ljósi á hvernig umfjöllunarefnið horfði við gildandi lagaumhverfi. Fjölmiðlum sé almennt ætlað rúmt svigrúm til umfjöllunar um málefni sem eiga erindi við almenning og eru framlag til samfélagslegrar umræðu. Ekki sé unnt að gera þá kröfu að fjölmiðlamenn geti sýnt fram á fulla sönnun hverrar og einnar staðhæfingar sem sett sé fram, enda myndi slíkt skerða svigrúm þeirra um of. Þess í stað nægi almennt að fréttir séu settar fram í góðri trú.

Siðanefnd fór sérstaklega yfir umfjöllun RÚV um sjálfræðisaldur og tiltekin ákvæði hegningarlaga og tók fram að það hefði verið afar einfalt fyrir RÚV og Sunnu Karen að vísa til þess að umrædd lagaákvæði hefðu tekið breytingum frá því að atvik máls urðu, en það var ekki gert og ekki tekið fram að samneyti Ásthildar og barnsföður hefði ekki getað fallið undir þágildandi hegningarlög. Með því að draga fram refsiramma núgildandi lagaákvæðis hafi verið auðvelt fyrir neytendur fréttarinnar, sérstaklega þá sem horfðu í sjónvarpi, að draga þá ályktun að Ásthildur hefði gerst sek um kynferðisbrot.

„Að mati nefndarinnar telst sú framsetning, sem áður hefur verið vitnað til, ekki sanngjörn í skilningi 2. gr. siðareglna Blaðamannafélags Íslands.“

Siðanefnd taldi ekki að um mjög alvarlegt brot væri að ræða. Þarna hafi RÚV þó sett atvik máls í samhengi við kynferðisbrotakafla núgildandi hegningarlaga sem sé einn svívirðilegasti brotaflokkurinn í flestra augum. Hins vegar tók siðanefnd fram að nefndin hefði að mestu hafnað kröfum Ásthildar í málinu og því var brotið metið ámælisvert sem eru vægustu brotin gegn siðareglum.

Sjá einnig:Hvað snýr upp og hvað snýr niður í máli Ásthildar Lóu?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fósturmóðir kærði ríkið fyrir húsleit lögreglu – Faðirinn hafði áður kært hana fyrir að svipta hann umsjá yfir syni sínum

Fósturmóðir kærði ríkið fyrir húsleit lögreglu – Faðirinn hafði áður kært hana fyrir að svipta hann umsjá yfir syni sínum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir að Rússar hafi afhent Úkraínumönnum lík rússneskra hermanna í nýlegum skiptum

Segir að Rússar hafi afhent Úkraínumönnum lík rússneskra hermanna í nýlegum skiptum