Samtökin Solaris – hjálparsamtök fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi gáfu í gær út yfirlýsingu þar sem lýst var yfir „áhyggjum af vaxandi útlendingaandúð í islensku samfélagi, sérstaklega í garð fólks á flótta, sem birtist okkur bæði í netheimum og raunheimum þessa dagana.“
Sema Erla Serdar, stjórnmálafræðingur og formaður Solaris rekur í færslu á Facebook að í ályktuninni var fjallað um „ábyrgð stjórnvalda og afleiðingar af stefnu í málefnum flóttafólks sem einkennist af félagslegri einangrun og útilokun fólks á flótta frá þátttöku og virkni í samfélaginu. Slík stefna kemur í veg fyrir að ólíkir einstaklingar og hópar fái tækifæri til að kynnast á jafningjagrundvelli og ýtir undir ótta og togstreitu á milli þeirra sem þekkjast ekki.“
Segir hún stjórn Solaris hafa með yfirlýsingunni kallað eftir umræðu á milli stjórnvalda og samfélagsins um hvernig megi auka samtal á milli ólíkra hópa til að auka samkennd og sporna gegn vaxandi fordómum og hatri í garð fólks á flótta sem leitar hingað eftir skjóli og vernd.
Vísir fjallaði um yfirlýsinguna í frétt í gær undir fyrirsögninni „Útlendingaandúð sé vinsæl leið til að marka sér stöðu á samfélagsmiðlum“. Fréttin var birt kl. 13.44 og deilt á Facebook. Nær 250 athugasemdir eru skrifaðar við færsluna þar og flestar ekki jákvæðar.
Sema Erla deildi í færslu sinni á Facebook í gærkvöldi skjáskoti af nokkrum athugasemdanna sem er beint gegn henni sem einstaklingi. Sema Erla botnar færslu sína með orðunum:
„Þau sem telja að útlendingaandúð sé ekki vandamál á Íslandi og gefa lítið fyrir áhyggjur okkar vilja koma eftirfarandi á framfæri í dag.“
Hér má sjá hluta af skjáskotunum sem Sema Erla deilir og yfirlýsinguna Solaris má lesa hér neðst.