fbpx
Fimmtudagur 12.júní 2025
Fréttir

Hart tekist á um Kópavogsleiðina eftir að móðir tveggja barna greindi frá svimandi kostnaði – „Vonlaus leið, þessi Kópavogsleið“

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 11. júní 2025 17:00

Bæjarstjórn Kópavogs hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir leið sem sögð er hampa ríkari foreldrum en skella kostnaðinum á þá sem verða að vinna allan daginn.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tveggja barna móðir í Kópavogi segir breytingar á leikskólagjaldakerfi bæjarins, Kópavogsleiðin svokallaða, hafa gert sveitarfélagið að því dýrasta á höfuðborgarsvæðinu fyrir barnafólk. Aðeins ríkasta fólkið geti nýtt sér gjaldfrjálsa vistun. Grein hennar hefur vakið mikla athygli og þingmenn tjáð sig um hana, á með og á móti.

„Kópavogur er dýrasta sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu fyrir foreldra með börn í leikskóla. Fyrir raunhæfan dvalartíma – 7 til 9 klukkustundir á dag – greiða foreldrar þar 27–75% hærri gjöld en í öðrum sveitarfélögum. Munurinn er enn meiri fyrir fjölskyldur með tvö börn, þar sem Kópavogur er næstum tvöfalt dýrari en Reykjavík eftir að svokallað Kópavogsmódel var innleitt af núverandi meirihluta,“ segir Eydís Inga Valsdóttir, tveggja barna móðir í Kópavogi, í aðsendri grein á Vísi.

Dýrt að vera með barn og enn þá dýrara með tvö

Bendir hún á að SAMLEIK, samtök foreldra leikskólabarna í Kópavogi, hafi gagnrýnt módelið sem gengur út á að þau börn sem eru stutt í leikskóla greiði ekkert en þau sem eru fullan dag greiði meira en áður. Þá hefur Kópavogur komið á kerfi þar sem heimilt er að hækka leikskólagjöldin fjórum sinnum á ári. Þegar sé búið að hækka þau tvisvar á árinu 2025.

„Þrátt fyrir þetta heldur meirihlutinn áfram að lýsa Kópavogi sem fjölskylduvænum bæ. En þegar kostnaður við fyrsta skólastigið er skoðaður blasir önnur mynd við. Leikskólagjöldin eru í raun skattar á barnafjölskyldur og endurspegla forgangsröðun stjórnvalda í Kópavogi,“ segir Eydís Inga í harðri gagnrýni á meirihluta Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins.

Sjá einnig:

Móðir í Kópavogi gagnrýnir yfirvöld vegna leikskólamála – „Hvað á ég að gera?“

Bent er á að gjald fyrir 8 stunda vistun í Kópavogi er 54.018 krónur á mánuði en aðeins 42.645 krónur í Hafnarfirði, 30.745 krónur í Mosfellsbæ og 34.542 í Reykjavík.

Fyrir tvö börn er munurinn enn meiri. Það er 95.206 krónur í Kópavogi, 74.649 krónur í Hafnarfirði, 51.037 krónur í Mosfellsbæ og 49.316 krónur í Reykjavík. Er það vegna þess að systkinaafslátturinn er svo lítill í Kópavogi.

„Ef 6 tíma gjaldfrjáls vistun í Kópavogi er undanskilin – sem er óraunhæfur kostur fyrir flesta foreldra í fullri vinnu – blasir við að Kópavogur er það sveitarfélag sem veitir minnstan fjárhagslegan stuðning við barnafjölskyldur í gegnum leikskólagjöld,“ segir Eydís Inga. „Kópavogsmódelið virðist í reynd fela í sér að foreldrar greiði með hæstu leikskólagjöldum landsins – og að aðeins þau sem búa við fjárhagslegt öryggi og gott félagslegt bakland geti nýtt sér gjaldfrjálsa vistun. Þá verður að spyrja: Fyrir hverja er þessi stefna hönnuð?“

„Vonlaus leið“

Hafa um greinina skapast miklar umræður á samfélagsmiðlum. Meðal annars á síðu lögfræðingsins Jónasar Más Torfasonar, sem tekur undir með Eydísi Ingu.

„Ungar fjölskyldur þurfa stuðning og betri þjónustu. Hana má hins vegar ekki fjármagna með refsisköttum á foreldra, líkt og gert hefur verið í Kópavogi. Fjölskyldur glíma við að ná endum saman og það er hlutverk sveitarfélaga að létta undir þeim — ekki leggja á þær frekari byrðar,“ segir Jónas Már.

Sjá einnig:

Talsverð óánægja með nýja leikskólaskipulagið í Kópavogi – Mesta óánægjan með áhrif á fjárhaginn

Undir þetta tekur meðal annars Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður Samfylkingar og forseti Alþingis.

„Vonlaus leið, þessi Kópavogsleið,“ segir Þórunn.

„Í hvaða búbblu lifirðu eiginlega?“

Annar þingmaður, Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, kemur meirihlutanum í Kópavogi hins vegar til varnar.

„Hefurðu ekki verið með börn á leikskóla í Reykjavík? Þekkirðu þá ekki foreldra ungra barna í Reykjavík? Þekkirðu ekki möndlið, tekjutapið, atvinnumissinn og gríðarlega kostnaðinn sem þessir foreldrar verða fyrir vegna sveltistefnu meirihlutans í dagvistunarmálum? Og það þrátt fyrir að börnum hafi fækkað þar! Þá er ég bæði að tala um bilið sem þarf að brúa, en ekki síður alla dagana sem þarf að græja vegna manneklu hjá Reykjavíkurborg. Linnulaust. Í hvaða búbblu lifirðu eiginlega?“ segir hún í athugasemd.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Embla Medical hlýtur Útflutningsverðlaun forseta Íslands og Ragnar Kjartansson heiðraður

Embla Medical hlýtur Útflutningsverðlaun forseta Íslands og Ragnar Kjartansson heiðraður
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Kröfu um atvinnurekstrarbann Ásgeirs til þriggja ára hafnað

Kröfu um atvinnurekstrarbann Ásgeirs til þriggja ára hafnað