fbpx
Fimmtudagur 11.desember 2025
Fréttir

Gríðarlegur rottugangur á heimili Hackman hjónanna – Olli dauða Betsy

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 15. apríl 2025 14:30

Dauði Gene og Betsy hefur verið mikið í fjölmiðlum undanfarnar vikur. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heimili leikarans Gene Hackman og eiginkonu hans Betsy Arakawa var sannkallað rottugreni. Betsy lést úr veiru sem berst gjarnan með nagdýrum.

Hjónin fundust látin á heimilinu þann 26. febrúar síðastliðinn ásamt einum af heimilishundunum. Þótti málið hið dularfyllsta en seinna kom í ljós að Betsy, sem var um 30 árum yngri en Gene, lést úr svokölluðum hantavírus, sem berst aðallega með nagdýrum. Gene, sem var með Alzheimer, lést um viku seinna úr hjartasjúkdómi.

Hackman hjónin bjuggu í 500 milljón króna villu, en henni var hins vegar illa við haldið. Lét heilbrigðiseftirlit New Mexico fylkis gera úttekt á húsinu, um viku eftir að hjónin fundust látin.

Niðurstöðurnar liggja nú fyrir og kemur í ljós að húsið var gróðrarstía fyrir hantavírus. Það er rottu og músagangur var gríðarlegur í húsinu.

Sjá einnig:

Gene Hackman og eiginkona hans fundust látin

Hantavírus smitast einkum með þvagi og skít úr nagdýrum. Nagdýraskítur fannst víða á heimilinu, í bílskúrum og kofum. Þá fundust einnig nagdýrahreiður með lifandi dýrum í bílskúrum. Einnig fundust nagdýr í bílum Hackman hjónanna og nagdýragildrur inni í húsinu, sem gefur til kynna að þau hafi vitað af vandamálinu og verið að reyna að bregðast við því.

Hantavírus er afar sjaldgæfur í Bandaríkjunum. Aðeins um 50 tilfelli greinast á ári. Hann er hins vegar ákaflega skæður.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Sauð upp úr á heimili sambýliskvenna í Kópavogi

Sauð upp úr á heimili sambýliskvenna í Kópavogi
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Áhugavert að fylgjast með viðbrögðum Íslendinga – 70 prósent þjóðarinnar í ofþyngd

Áhugavert að fylgjast með viðbrögðum Íslendinga – 70 prósent þjóðarinnar í ofþyngd
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Skotin flugu eftir færslu Sigmars: „Enginn brjálaður hérna, nema kannski forseti þingsins“

Skotin flugu eftir færslu Sigmars: „Enginn brjálaður hérna, nema kannski forseti þingsins“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Íslensk börn getin með sæði úr dönskum gjafa með lífshættulega genastökkbreytingu

Íslensk börn getin með sæði úr dönskum gjafa með lífshættulega genastökkbreytingu
Fréttir
Í gær

Dauðsfallið á Kársnesi: Maðurinn látinn laus úr gæsluvarðhaldi

Dauðsfallið á Kársnesi: Maðurinn látinn laus úr gæsluvarðhaldi
Fréttir
Í gær

Segir þetta stærsta réttlætismál næstu ára – „Til konunnar sem þurfti að gefa barnið sitt í burtu“

Segir þetta stærsta réttlætismál næstu ára – „Til konunnar sem þurfti að gefa barnið sitt í burtu“
Fréttir
Í gær

Styrktarátak Nettó skilar 5,5 milljónum króna til Ljóssins

Styrktarátak Nettó skilar 5,5 milljónum króna til Ljóssins
Fréttir
Í gær

Guðmundur Ingi í veikindaleyfi – Þarf að gangast undir hjartaaðgerð

Guðmundur Ingi í veikindaleyfi – Þarf að gangast undir hjartaaðgerð