
Dagur Þór Hjartarson, 27 ára gamall maður, var sakfelldur í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun fyrir tilraun til manndráps. Ákært var vegna hnífstunguárásar við Mjódd í Reykjavík síðasta sumar, en málið vakti mikla athygli og mikinn óhug. Dagur Þór stakk brotaþola í hægri öxl með 28 cm löngum hnífi. Við atlöguna hlaut brotaþoli lífshættulegan stunguáverka sem gekk niður í brjósthol hans, með þeim afleiðingum að hann hlaut loftbrjóst, blóðbrjóst, mar á hægra lunga og mikið loft í mjúkvefjum á hálssvæði hægra megin og þar í kring, auk slagæðablæðingar og áverka aftan við tvö rifbein.
Mennirnir lentu í rifrildi og átökum í aðdraganda hnífstungunnar og bar Dagur Þór við sjálfsvörn þar sem brotaþoli hefði ógnað honum með kylfu. Dómari hafnaði þessari málsvörn og taldi að hugsanleg árás með kylfu gæti aldrei réttlætt atlögu ákærða með hnífi, þar sem vörnin hefði verið augsýnilega hættulegri en sú ógn sem af árásinni stafaði.
Refsing yfir Degi Þór var ákvörðuð fimm og hálfs árs fangelsi. Dómari mat að hann hefði haft einbeittan ásetning til að stinga brotaþola og honum hefði ekki getað dulist að lífshættulegir áverkar og jafnvel dauði væru langlíklegustu afleiðingar stungunnar, eða að honum hafi að minnsta kosti staðið á sama um afleiðingarnar. Háttsemi hans var metin í engu samræmi við það sem á undan var gengið. Af þessum sökum taldi dómurinn ekki forsendur til að beita heimild í 2. mgr. 20. gr. almennra hegningarlaga til að dæma vægari refsingu, sem unnt er þegar tilraun gefur til kynna að brotamaður sé ekki jafn hættulegur og ella mætti ætla.
Var Dagur Þór því dæmdur á grundvelli 211. grein hegningarlaganna en þar er refsiramminn 16 ára fangelsi og refsing ekki lægri en fimm ár. Er því ljóst að refsingin er nálægt lágmarksrefsingu fyrir brot á þessari lagagrein.
Dómari mat einbeittan ásetning ákærða til að stinga brotaþola til refsiþyngingar, sem og alvarleika árásarinnar. Einnig var metið til refsiþyngingar að ákærði hefur áður gerst brotlegur við lög og hlotið refsidóma. Vegna einbeitts brotavilja og hættunnar sem stafaði af ákærða á verknaðarstundu taldi dómari ekki grundvöll til að beita heimild tl refsilækkunar.
Brotaþolinn gerði kröfu um fimm milljónir króna í miskabætur. Niðurstaðan var sú að Dagur Þór var dæmdur til að greiða honum 2 milljónir í miskabætur auk þess sem skaðabótaskylda hans í málinu er viðurkennd.
DV hafði samband við verjanda Dags Þórs, Sævar Þór Jónsson hæstarréttarlögmann, og spurði hvort óskað verði eftir áfrýjun málsins til Landsréttar. Hann segist vera að meta málið með skjólstæðingi sínum og næstu skref. Hann tekur undir með blaðamanni um að refsiramminn í svona málum sé mjög hár, eða 16 ára fangelsi.