fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Hraunar yfir jólatónleika Emmsjé Gauta – „Dröslað á svið í færibandavinnu sem minnti á sláturhús“

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 22. desember 2025 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tónlistarmaðurinn Gauti Þeyr Másson, eða Emmsjé Gauti, eins og við þekkjum hann best hélt árlega jólasýningu sína, Julevenner, í ÍR-heimilinu síðastliðinn föstudag og laugardag. Er þetta annað árið í röð sem tónleikarnir fara fram þar eftir að hafa verið í Háskólabíói um árabil. Gestir í ár voru Birnir, Bríet, Ragga Gísla.

Tónleikarnir hafa verið afar vinsælir og voru uppseldir í ár eins og oft áður, en ekki eru allir sáttir með sýninguna líkt og dómur tónlistargagnrýnandans Jónasar Sen á Vísi ber vitni um. Gefur hann eina stjörnu með fyrirsögninni Hel­víti á jörðu: Emm­sjé Gauti minnti á líkams­ræktarþjálfara í maníu.

Segir kapítalismann geta selt hvað sem er 

Fór Jónas á tónleikana á föstudag og segir viðburðinn sanna endanlega að „kapitalisminn getur selt okkur hvað sem er, svo lengi sem það er pakkað inn í nógu mikið glimmer og kaldhæðni. Segir hann tónleikana hafa verið ein risavaxin auglýsing fyrir hitt og þetta, en aðallega áfengi.

„Ef markmiðið var því að sjúga hverja einustu örðu af sál, heilagleika og menningu úr jólahátíðinni, þá tókst Gauta það ekki bara; hann fullkomnaði verkið.

Það er til ákveðin tegund af helvíti á jörðu. Hún er ekki logandi eldur og brennisteinn, heldur lýsir hún sér sem troðfullur salur af dauðadrukknu fólki í jólapeysum úr gerviefnum, angandi af blöndu af rándýru ilmvatni og bjór.“

Lýsir hann innkomu Emmsjé Gauta og upphafi tónleikanna. Lýsir Jónas tónleikunum við hljóðrænan snjóplóg og ekki hafi verið um tónlist að ræða heldur plastpakkaður hávaði, hannaður fyrir fólk sem hefur misst hæfileikann til að einbeita sér lengur en í 15 sekúndur á TikTok. Róleg lög og nútímavædd jólalög hafi ekki reynst góð.

Líkir gestunum við sláturhús

Jónas kallar leynigesti Emmsjé Gauta Gísla í sviðsljósinu og segir þeim hafa verið dröslað á svið svo líktist sláturhúsi, af þeim hafi Bríet auðveldlega toppað Emmsjé Gauta.

„Hún brosti sínu stífasta Instagram-brosi, söng fáein lög og flúði svo aftur í myrkrið. Líklega til að hringja í umboðsmanninn sinn og spyrja hvenær peningarnir kæmu inn.“

Segir Jónas tónleikana hafa verið ein risavaxin áfengisauglýsing og hvatt til drykkju í hverju lagi með því að hampa áfengi.

„Einhver skrækróma kvenmaður í hátalarakerfinu kallaði áheyrendur „elsku fyllibytturnar mínar“ til að hrósa því hvað fólk drakk mikið.“

Eins og ofangreind lýsing og umsögn Jónasar sé ekki nóg þá segir hann lægsta punkt tónleikanna hafa verið atriði sem var ekki bara hallærislegt að hans mati heldur hreint og beint guðlast: fjölbragðaglíma Jesú og jólasveinsins.

„Að horfa á leikara í gervi frelsarans, klæddan í druslulegan slopp sem virtist stolinn af smitsjúkdómadeild Landspítalans, veltast um sviðið í þágu neysluhyggjunnar var ömurleg sjón. „Bardaginn“ minnti helst á tvo ölvaða frændur að slást um síðustu sósuskeiðina í fermingarveislu, en undirtónninn var alvarlegri: Hér var heilagleikinn seldur fyrir ódýr hlátrasköll. Þetta var menningarlegt sjálfsmorð og óneitanlega móðgun við alla þá sem bera minnstu virðingu fyrir boðskap jólanna.“

„Jólahátíðin er formlega dauð

Jónas fer síðan yfir lagalista sem Emmsjé Gauti hefði getað sungið.

Jónas súmmerar svo dóm sinn upp:

„Jólahátíðin er formlega dauð. Að öllu gamni slepptu var þetta skelfilega lágkúra. Þegar sýningunni lauk stóð ég upp og fann til tómleika. Jólatónleikar Emmsjé Gauta eru fullkomin birtingarmynd nútímans: Háværir, grunnhyggnir, dýrir og algjörlega innantómir. Þetta er McDonalds-útgáfan af menningu. Ef þú vilt upplifa sanna jólablessun, slepptu þessu á næsta ári, farðu heim, slökktu ljósin og eyddu kvöldinu í að horfa á myglusvepp vaxa. Það hefur meiri dýpt og listrænan metnað.“

Lesa má gagnrýni Jónasar í heild sinni hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Reykjavíkurborg varpar ljósi á það sem er í gangi í Ölduselsskóla

Reykjavíkurborg varpar ljósi á það sem er í gangi í Ölduselsskóla
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“