Jón Pétur skrifar skoðanagrein á Vísi í dag undir fyrirsögninni Þetta unga fólk getur bara haldið kjafti. Þar gerir hann meðal annars ummæli Kolbrúnar Áslaugar Baldursdóttur, þingkonu Flokks fólksins, að umtalsefni á Alþingi síðasta föstudag.
Athygli vakti þegar Kolbrún sagði við atkvæðagreiðslu á lögum um námsmat grunnskóla að nefndarstörf hefðu gengið vel ef frá væri talin tilraun minnihlutans til að fá handbendi sín fyrir nefndina. „Fjóra unga krakka í framhaldsskóla sem búið var að sérvelja og mögulega segja þeim hvað þau ættu að segja fyrir framan þingmannanefndina,“ bætti hún við.
Vísir fjallaði ítarlega um málið um helgina og ræddi meðal annars við Diljá Kjerúlf, fyrrverandi inspector scholae hjá MR, og Úlfhildi Elísu Hróbjartsdóttur sem komu meðal annars fyrir nefndina.
„Ég er alls ekki sátt. Að háttvirtir meðlimir Alþingis láti svona orð falla í þingsal. Þau áttu kannski að vera særandi fyrir Snorra Másson og flokkinn hans en ásakanirnar lenda á okkur saklausum,“ sagði Diljá meðal annars.
Í grein sinni segir Jón Pétur að það sé jákvætt þegar fólk afhjúpar sig.
„Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, þingmaður Flokks fólksins, var margoft búinn að segja, með stuðningi Samfylkingar og Viðreisnar, að þetta unga fólk ætti ekkert erindi fyrir allsherjar- og menntamálanefnd. Það hefði ekkert að segja og væru leiksoppar minnihlutans. Sem betur fer álpaðist hún til að segja þetta í fjórða sinn en nú fyrir framan alþjóð, í ræðupúlti Alþingis og opinberaði viðhorf og þankagang Flokks fólksins sem er einn af ríkisstjórnarflokkunum.“
Jón Pétur segir að það sé fleira sem fólk kannski gerir sér ekki alveg grein fyrir. Þessir flokkar séu að festa í sessi að jafnræði sé brotið stöðugt á grunnskólanemendum.
„Nú finna t.d. útskriftarnemendur og foreldrar þeirra fyrir því þegar nemendur fá útskriftareinkunnir sínar sem eru með engum hætti samanburðarhæfar sem eiga samt að vera í samfellu við aðalnámskrá framhaldsskólans. Réttlætið er ekkert og jafnræðinu, sem er stjórnarskrárbundið, sturtað niður í klósettið,” segir hann og bætir við að þetta séu flokkarnir að festa í sessi.
„Litakóðar, bókstafir, lokið/ólokið, umsagnir og hæfni á góðri leið eru einungis hluti af námsmatsruglinu sem er í aðalnámskrá grunnskóla sem ekki var innleidd. Ekki einum kennara, skólastjórnanda, nemenda né foreldra fannst aðalnámskráin vel innleidd og létu það einnig flakka að hún væri illskiljanleg og flókin og markmiðum hennar væri alls ekki náð. Þetta eru ofangreindir flokkar að festa í sessi,” segir hann og er þeirrar skoðunar að ríkisstjórnarflokkarnir hafi enga getu, áhuga eða metnað til að laga hrunið menntakerfi.
Hann nefnir fleiri hluti og segir að framhaldsskólarnir hafi verið gerðir einsleitari og sérstöðu hvers og eins hent í ruslið.
„Þetta er einungis hluti af þeim skaða sem ríkisstjórnin hefur valdið á bara á aðeins sex mánuðum við stýrið. Enginn geta eða áhugi er hjá þeim að svara fyrir skaðann enda bitnar þetta mest á ungu fólki. Verkstjórnin mikla má þó eiga það að hún lætur verkin tala og engu máli skiptir hvort skaðinn sé mikill eða alger, bara ef þetta unga fólk heldur sér saman.”