fbpx
Fimmtudagur 12.júní 2025
Fréttir

Gagnrýnir foreldra sem taka börnin með í nikótínbúðir – „Gjörsamlega siðlaust“

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 10. júní 2025 16:00

Nikótínverslanir hafa sprottið upp eins og gorkúlur á undanförnum árum. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nikótín búðir eru nýjar af nálinni og fólk enn þá að læra á það hvernig eigi að umgangast þær eða ekki. Borið hefur á því að fólk taki börn með inn í slíkar búðir, jafn vel lítil börn.

„Líður ekki eins og ég þurfi að útskýra en þetta er eins og að fara með barnið þitt í ríkið og láta það halda a bjórnum út fyrir þig,“ segir hneykslaður málshefjandi umræðu á samfélagsmiðlinum Reddit. „Gjörsamlega siðlaust að láta tveggja ára barn halda a nikótín púðanum/veipinu út í bíl með þetta í höndunum.“

Segir hann að viðkomandi ætti heldur ekki að skilja barnið eftir úti í bíl til þess að fara inn í nikótínverslun.

„En ótrúleg hugmynd er að ekki versla nikótín þegar þú ert með barnið. Getur hent í að versla þetta í 10-30 tali í einni ferð svo maður er góður út mánuðinn. En díses það er svo sálardrepandi að horfa upp á þetta,“ segir hann.

Líklegri til að nota nikótín seinna

Hafa skapast heilmiklar umræður um færsluna og sitt sýnist hverjum. Það er hvort það sé skaðlegt fyrir börn að fara inn í nikótínverslanir þar sem seldir eru litríkir veippennar og dollur með nikótínpúðum. Virðist þetta vera mjög algengt.

„Sem starfsmaður í matarbúð sé ég stanslaust foreldra kaupa níkótín/sígaréttur fyrir framan börnin,“ segir einn.

Annar segir að þetta normaliseri óheilbrigða hegðun og að börnin verði líklegri til að nota nikótín í framtíðinni. „Vann í ÁTVR í smá tíma og tók eftir að krakkar eru oft spenntir að sjá hvað foreldrar eru að kaupa og fylgjast vel með,“ segir hann.

Sjá einnig:

Nikótínpúðar undir vörinni geta valdið heilaskaða og eyðilagt tannholdið

„Það sakar ekki að sleppa því að taka börnin með þegar þú ferð að versla fíkniefni,“ segir enn annar.

Einn segir nánast bókað að barnið muni byrja að nota efni síðar á lífsleiðinni.

„Ég var að koma úr Bónus þegar barn, svona 5 ára, gengur út úr veip búð með pabba sínum. Ég hugsaði bara aumingja barnið, líkurnar á að það muni nota nikótín/veip/sígarettur strax á unglingsaldri eru nánast 100%. Ég hefði haldið að foreldrar sem nota nikótín áttuðu sig samt á að það væri skaðlegt fyrir líkamann og myndu reyna að halda börnunum sínum frá því,“ segir hann.

Feluleikur meira spennandi

Einnig eru margir sem telja þetta ekki vera vandamál. Það sé ofmetið hversu mikil áhrif þetta hafi á börnin.

„Ég fór oft með pabba mínum í ríkið, og það skammaðist sín enginn, mér var svo bara kennt að umgangast áfengi að gát. Ég sá oftar fólk misnota áfengi og vímuefni í Hagkaup sem barn en í vínbúðunum,“ segir einn. „Það er fáránlegt að fela þennan part af tilverunni frá börnum og svo þegar þau komast á unglingsaldur fara þau beint í að misnota áfengi.“

Annar segir feluleik gera neysluna meira spennandi.

„Að nota nikótín í laumi frá börnunum þínum er meira hvetjandi fyrir þau en að vera heiðarlegur við þau. Börnin eru gáfaðri en þú gefur þeim credit fyrir, þau munu vita að þú notir nikótín þó þú reynir að fela það fyrir þeim, og þú gerir þetta bara spennandi með því að breyta því í feluleik. Hafðu þetta frekar sýnilegt og kenndu þeim að þú hafir verið vitlaus að byrja og þú sjáir eftir því og nöldraðu svo yfir því hvað þetta er dýrt,“ segir hann.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Íslensk börn komast ekki á leikvelli út af ferðamönnum – „Mér finnst þetta alveg ótrúlega dónalegt“

Íslensk börn komast ekki á leikvelli út af ferðamönnum – „Mér finnst þetta alveg ótrúlega dónalegt“
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Alþjóðlegt þjófagengi herjaði á íslenskar verslanir

Alþjóðlegt þjófagengi herjaði á íslenskar verslanir
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Nýnasistinn Tommy Robinson rekinn út af veitingastað – Starfsfólkið vildi ekki afgreiða hann

Nýnasistinn Tommy Robinson rekinn út af veitingastað – Starfsfólkið vildi ekki afgreiða hann
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Ríkisstjóri Kaliforníu var nálægt því að bresta í grát þegar hann ræddi stöðu mála í Los Angeles

Ríkisstjóri Kaliforníu var nálægt því að bresta í grát þegar hann ræddi stöðu mála í Los Angeles
Fréttir
Í gær

Jón Pétur allt annað en sáttur: „Þetta unga fólk getur bara haldið kjafti“

Jón Pétur allt annað en sáttur: „Þetta unga fólk getur bara haldið kjafti“
Fréttir
Í gær

Grænlendingar fá ekki inngöngu í CONCACAF – Ógnin frá Trump hefur áhrif

Grænlendingar fá ekki inngöngu í CONCACAF – Ógnin frá Trump hefur áhrif
Fréttir
Í gær
Orri er látinn