Sveitarfélagið Fjarðabyggð hefur birt í Skipulagsgátt framkvæmdaleyfi vegna áforma félags áhugafólks um fornleifarannsóknir í Stöðvarfirði um að færa fornminjar á svæðinu inn í miðju þorpsins og hafa þær þar til sýnis. Kemur fram meðal annars í samantekt að meðal þeirra fornminja sem standi til að færa sé hola.
Í samantektinni segir að félagið vilji færa langeld sem sé í eldri landnámsskálanum í Stöð á Stöðvarfirði inn í þorpið og hafa hann þar til sýnis. Samkvæmt mælingu á Íslandskorti á Já.is er Stöð í um 4,5 kílómetra fjarlægð frá þorpinu.
Segir einnig í samantektinni að ætlunin sé að færa á sama stað soðholu sem sé við enda langeldsins en eftirfarandi er bætt við innan sviga:
„Að svo miklu leyti sem hægt er að færa holu.“
Á vefsíðunni Austurland.is eru upplýsingar um þær fornleifarannsóknir sem fram hafa farið á Stöðvarfirði en þar segir um soðholur:
„Í þeim var soðinn matur. Þær voru grafnar ofan í jörðina, fóðraðar með einhverju þéttiefni eins og ösku eð leir og fylltar af vatni. Síðan voru settir ofan í þær heitir steinar og kjöt, vatnið sauð og kjötið eldaðist.“
Segir loks í samantektinni að félagið hyggist koma þessum minjum fyrir í miðju þorpinu á Stöðvarfirði, á svæði þar sem reist hafi verið stytta af landmánsmanninum Þórhaddi gamla. Yfir þær yrði væntanlega byggður gegnsær gler- eða plexikassi sem hægt væri að horfa ofan í og sjá minjarnar.
Með framkvæmdaleyfinu eru birtar teikningar og lýsingar á því hvernig sýningarsvæðið eigi að vera. Sömuleiðis eru birt tölvupóstsamskipti félagsins og Minjastofnunar.
Segir í bréfi félagsins um hvatann að áformunum að rannsókn á eldri landnámsskálanum á Stöð sé nú lokið og eftir sitji fallega hlaðið eldstæði sem muni hverfa aftur undir mold ef ekkert verði að gert. Því er bætt að landeigendur hafi ekki áhuga á að varðveita skálann og eldstæðið á staðnum. Um soðholuna segir í bréfinu að hún sé einstök að því leyti að hún hafi verið innan dyra og sé fóðruð með hellusteinum.
Í svari Minjastofnunar er lýst yfir ánægju með áhugann á rannsókninni á umræddum fornleifum og vilja félagsins til að miðla henni áfram til almennings. Stofnunin gerir ekki athugasemdir við fyrirhugaða tilfærslu á fornminjunum að öðru leyti en því að setja fram kröfu um að fornleifafræðingur verði á staðnum þegar langeldurinn og leifarnar af soðholunni verði fjarlægð því vænta megi þess að mannvistarlög og mögulega gripir leynist þar undir. Fornleifafræðingurinn muni skrásetja mannvistarlögin og aðrar fornleifar sem komi í ljós, eftir viðurkenndum aðferðum greinarinnar. Nauðsynlegt sé þó að sækja um rannsóknarleyfi til stofnunarinnar fyrir verkið sem væri á höndum fornleifafræðingsins að sjá um.
Vonast stofnunin til þess að sett verði upp upplýsingaskilti og gert grein fyrir því að um sé að ræða endurgerð af eldstæðinu úr skálanum á Stöð svo að fólk haldi ekki að um sé að ræða fornminjar sem fundist hafi á staðnum þar sem þær verði til sýnis.