fbpx
Mánudagur 16.mars 2026
433Sport

Telja sig vita hver framdi morðið um helgina og hvaða vopn hann notaði

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 9. febrúar 2026 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrverandi argentínski knattspyrnumaðurinn Lucas Ignacio Pires er látinn eftir að hafa orðið fyrir alvarlegum áverkum í slagsmálum á götu í Buenos Aires-héraði. Lögregla hefur hafið morðrannsókn vegna málsins.

Pires, sem var 29 ára og lék áður sem framherji í argentínsku B-deildinni með Club Almirante Brown, á að hafa lent í átökum við einn bróður sinn í úthverfinu Rafael Castillo á föstudagskvöld. Samkvæmt erlendum miðlum hlaut hann djúpan skurð á hægri framhandlegg sem skar í sundur slagæð og olli miklu blóðtapi.

Hann var fluttur á sjúkrahús þar sem reynt var að bjarga lífi hans, en lést skömmu síðar þrátt fyrir viðleitni lækna. Eftir að andlát hans var staðfest hófu yfirvöld leit að hinum grunaða. Talið er að einn bræðra hans beri ábyrgð á árásinni og að hann hafi yfirgefið vettvang. Talið er að bróðir hans hafi notað brotna glerflösku.

Lögregla skoðar nú upptökur úr öryggismyndavélum sem eiga að hafa náð atvikinu. Rannsókn málsins stendur yfir.

Pires átti feril í neðri deildum argentínsks fótbolta eftir tíma sinn hjá Almirante Brown. Í yfirlýsingu frá félaginu var hans minnst og fjölskyldu hans og aðstandendum sendar samúðarkveðjur. Andlát hans hefur vakið sorg í knattspyrnusamfélaginu á svæðinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Frá Arsenal til Fulham
433Sport
Í gær

Of ungur til að fá að spila fyrir United

Of ungur til að fá að spila fyrir United
433Sport
Í gær

Guardiola segir vonina úti ef illa fer í kvöld

Guardiola segir vonina úti ef illa fer í kvöld
433Sport
Í gær

Carragher segir að þetta sé maðurinn sem United á að ráða til starfa

Carragher segir að þetta sé maðurinn sem United á að ráða til starfa
433Sport
Í gær

Arsenal byrjað að ræða við líklega sinn mikilvægasta leikmann

Arsenal byrjað að ræða við líklega sinn mikilvægasta leikmann
433Sport
Fyrir 2 dögum

Tveir lykilmenn til sölu – Áhugi frá Englandi

Tveir lykilmenn til sölu – Áhugi frá Englandi
433Sport
Fyrir 2 dögum

Grínaðist með að hafa reynt að fá Jóa Berg til að skrifa undir – „Á milli þess sem maður var að skoða sérsveitina var maður aðeins daðra við hann“

Grínaðist með að hafa reynt að fá Jóa Berg til að skrifa undir – „Á milli þess sem maður var að skoða sérsveitina var maður aðeins daðra við hann“