fbpx
Föstudagur 13.mars 2026
Fréttir

Kuratech og Creditinfo í samstarf

Ritstjórn DV
Mánudaginn 9. febrúar 2026 14:12

Samkomulagið handsalað

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kuratech og Creditinfo hafa undirritað samstarfssamning sem felur í sér aðgengi að gögnum og upplýsingum úr gagnagrunnum Creditinfo í lausnum Kuratech.

Kuratech er íslenskt tæknifyrirtæki sem þróar lausnir fyrir skiptastjóra þrotabúa. Hugbúnaðarlausn Kuratech hjálpar skiptastjórum að greina eignaundanskot í aðdraganda gjaldþrotaskipta auk þess að sjálfvirknivæða margvíslega handavinnu í gjaldþrotaskiptum. Þar sem skiptastjórar hafa takmarkaðan tíma til að rannsaka flókin þrotabú í þaula, notar Kuratech nýjustu tækni í gagnagreiningu og gervigreind til að rýna í fjárhagsupplýsingar, flagga grunsamlegum viðskiptum og finna verðmæti sem annars færu forgörðum, allt á brotabroti af þeim tíma sem handvirk vinna tekur.

Kristján Óli, framkvæmdastjóri Kuratech, er ánægður með samstarfið og segir það mikilvægan lið í framtíðaráformum félagsins: „Samstarf Creditinfo og Kuratech styrkir lausnina enn frekar og gerir skiptastjórum kleift að vinna hraðar og með meiri innsýn. Auk þess greiðir Creditinfo leið Kuratech á erlenda markaði með aðgangi að sambærilegum gögnum í fjölmörgum ríkjum utan Íslands. Þetta samstarf er því mikilvægur liður í því að gera lausn Kuratech að alþjóðlegri vöru.“

Hreinn Bergs, viðskiptastjóri hjá Creditinfo, segir það sérstakt ánægjuefni að geta stutt við nýsköpun á Íslandi: „Það gleður okkur hjá Creditinfo að geta stutt við Kuratech og þá öflugu nýsköpun sem félagið stendur að. Við höfum fulla trú á því að gagnalindir okkar og lausnir muni nýtast vel við að einfalda vinnslu þrotabúa og styðja við áframhaldandi vöxt félagsins. Samstarfið hefur verið afar ánægjulegt og við hlökkum til framhaldsins.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Áhrifamáttur Menntunarsjóðs Mæðrastyrksnefndar

Áhrifamáttur Menntunarsjóðs Mæðrastyrksnefndar
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Mikið fjör á Takkleikum í Smáralind

Mikið fjör á Takkleikum í Smáralind
Fréttir
Í gær

Vilhjálmur: Eitthvað alvarlega rangt við stöðuna þegar þetta gerist

Vilhjálmur: Eitthvað alvarlega rangt við stöðuna þegar þetta gerist
Fréttir
Í gær

Síminn og Sýn undirrita skilmálaskjal um kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar – Heildarvirðið metið á rúma 5 milljarða

Síminn og Sýn undirrita skilmálaskjal um kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar – Heildarvirðið metið á rúma 5 milljarða